Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 29. maí 2021

1253/2015

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 365/2014 um skráningarkerfi fyrir losunarheimildir.

1. gr.

Við 9. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 2. tl. svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/1844 frá 13. júlí 2015 að því er varðar tæknilega framkvæmd á Kýótóbókuninni eftir 2012 sem vísað er til í tölulið 21ana, III. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 284/2015 frá 30. október 2015, með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari, XX. viðauka samningsins, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74 frá 10. desember 2015, bls. 977-982.

2. gr. Innleiðing.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar 2015/1844 frá 13. júlí 2015 að því er varðar tæknilega framkvæmd á Kýótóbókuninni eftir 2012 sem vísað er til í tölulið 21ana, III. kafla, XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 284/2015, frá 30. október 2015.

3. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. g. laga nr. 70/2012 um loftslagsmál og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 18. desember 2015.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Helga Jónsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.