Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

123/2015

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 822/2010, um flutning úrgangs á milli landa.

1. gr.

Á eftir o. lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur nýr stafliður (p.), svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 733/2014 frá 24. júní 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1418/2007 um útflutning á tilteknum tegundum úrgangs til endurnýtingar til tiltekinna landa utan Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), sem vísað er til í tölulið 32 cb, V. kafla XX. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 296/2014 frá 12. desember 2014. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 8 frá 5. febrúar 2015 - 2015/EES/8/53, bls. 764-817.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett til innleiðingar á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 733/2014 frá 24. júní 2014 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1418/2007 um útflutning á tilteknum tegundum úrgangs til endurnýtingar til tiltekinna landa utan Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD).

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 43. gr. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs, tekur þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 5. febrúar 2015.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.