Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

903/2012

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1101/2004 um markaðssetningu sæfiefna. - Brottfallin

1. gr.

Í töflu í A-hluta V. viðauka, "Virk efni sem heimilt er að nota í sæfiefni", bætast við efni, sbr. töflu í I. viðauka við þessa reglugerð.

2. gr.

Eftirfarandi gerðir öðlast gildi hér á landi:

  1. Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2011/66/ESB frá 1. júlí 2011 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB í því skyni að bæta virka efninu 4,5-díklór-2-oktýl-2H-ísótíasól-3-on við í I. viðauka við hana, sem vísað er til í lið 12n í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 48/2012, þann 30. mars 2012.
  2. Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2011/67/ESB frá 1. júlí 2011 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB í því skyni að bæta virka efninu abamektíni við í I. viðauka við hana, sem vísað er til í lið 12n í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 48/2012, þann 30. mars 2012.
  3. Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2011/69/ESB frá 1. júlí 2011 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB í því skyni að bæta virka efninu imídaklópríði við í I. viðauka við hana, sem vísað er til í lið 12n í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 48/2012, þann 30. mars 2012.
  4. Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2011/71/ESB frá 26. júlí 2011 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB í því skyni að bæta virka efninu kreósóta við í I. viðauka við hana, sem vísað er til í lið 12n í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 87/2012 þann 30. apríl 2012.
  5. Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2011/78/ESB frá 20. september 2011 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB í því skyni að bæta virka efninu Bacillus thuringiensis, subsp. israelensis, sermigerð H14, stofn AM65-52 við í I. viðauka við hana, sem vísað er til í lið 12n í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 49/2012, þann 30. mars 2012.
  6. Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2011/79/ESB frá 20. september 2011 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB í því skyni að bæta virka efninu fípróníl við í I. viðauka við hana, sem vísað er til í lið 12n í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 49/2012, þann 30. mars 2012.
  7. Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2011/80/ESB frá 20. september 2011 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB í því skyni að bæta virka efninu lamda-sýhalótrín við í I. viðauka við hana, sem vísað er til í lið 12n í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 49/2012, þann 30. mars 2012.
  8. Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2011/81/ESB frá 20. september 2011 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 98/8/EB í því skyni að bæta virka efninu deltametrín við í I. viðauka við hana, sem vísað er til í lið 12n í XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 49/2012, þann 30. mars 2012.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni og lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 17. október 2012.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Sigurbjörg Sæmundsdóttir.

VIÐAUKI
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica