Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

811/2012

Reglugerð um breytingu á reglugerð, nr. 456/1994 um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum, með síðari breytingum.

1. gr.

5. tl. 2. mgr. 8. gr. orðast svo:

Heimilt er að veiða rjúpu árið 2012 eftirtalda níu daga:

föstudaginn 26. október,
laugardaginn 27. október,
sunnudaginn 28. október,
laugardaginn 3. nóvember,
sunnudaginn 4. nóvember,
laugardaginn 17. nóvember,
sunnudaginn 18. nóvember,
laugardaginn 24. nóvember og
sunnudaginn 25. nóvember.

Rjúpnaveiðar eru þó alltaf óheimilar á friðuðu svæði, sbr. 9. gr.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. og 17. gr. laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 24. september 2012.

Svandís Svavarsdóttir.

Magnús Jóhannesson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica