Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1054/2017

Reglugerð um (12.) breytingu á reglugerð nr. 878/2014 um sæfivörur.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast fjórir nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/698 frá 3. febrúar 2017 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) nr. 1062/2014 um vinnuáætlunina um kerfisbundna athugun á öllum fyrirliggjandi virkum efnum sem sæfivörur innihalda og um getur í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012 að því er varðar að bjóða sæfivörur fram á markaði og um notkun þeirra, sem vísað er til í tl. 12nza, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 169/2017, þann 22. september 2017. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67 frá 19. október 2017, bls. 531-546.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/794 frá 10. maí 2017 um að samþykkja kísiltvíoxíð (kísilgúr) sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18, sem vísað er til í tl. 12zzzzm, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 173/2017, þann 22. september 2017. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67 frá 19. október 2017, bls. 578-580.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/795 frá 10. maí 2017 um að samþykkja hitavaldandi, tilbúið, myndlaust, nanó, yfirborðsmeðhöndlað kísildíoxíð sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18, sem vísað er til í tl. 12zzzzn, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 173/2017, þann 22. september 2017. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67 frá 19. október 2017, bls. 581-583.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/796 frá 10. maí 2017 um að samþykkja díklóflúaníð sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 21, sem vísað er til í tl. 12zzzzo, XV. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 173/2017, þann 22. september 2017. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 67 frá 19. október 2017, bls. 584-587.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Framseldri reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/698 frá 3. febrúar 2017 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) nr. 1062/2014 um vinnuáætlunina um kerfisbundna athugun á öllum fyrirliggjandi virkum efnum sem sæfivörur innihalda og um getur í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 528/2012 að því er varðar að bjóða sæfivörur fram á markaði og um notkun þeirra.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/794 frá 10. maí 2017 um að samþykkja kísiltvíoxíð (kísilgúr) sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/795 frá 10. maí 2017 um að samþykkja hitavaldandi, tilbúið, myndlaust, nanó, yfirborðsmeðhöndlað kísildíoxíð sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 18.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/796 frá 10. maí 2017 um að samþykkja díklóflúaníð sem fyrirliggjandi virkt efni til notkunar í sæfivörur í vöruflokki 21.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 3. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 16. nóvember 2017.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.