Umhverfisráðuneyti

1005/2006

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 786/1999 um mengunarvarnaeftirlit. - Brottfallin

1. gr.

Töluliðir 10.5 og 10.6 í fylgiskjali 2 orðast svo:

10.5

Flugeldasýningar, nema á tímabilinu 28. desember til 6. janúar að báðum dögunum meðtöldum.

10.6

Brennur, sem ætla má að bruni standi yfir í meira en 2 tíma (áramóta - Jónsmessu - ýmsir viðburðir).

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 5. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir. Reglugerðin öðlast gildi við birtingu.

Umhverfisráðuneytinu, 23. nóvember 2006.

F. h. r.

Magnús Jóhannesson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica