Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

936/2018

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 960/2016 um gæði eldsneytis.

1. gr.

Við 15. gr. reglugerðarinnar bætast tveir nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2164 frá 17. nóvember 2017 um viðurkenningu á valfrjálsu áætluninni "RTRS EU RED" til að sýna fram á að viðmiðunum um sjálfbærni samkvæmt tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 98/70/EB og 2009/28/EB hafi verið fylgt, sem vísað er til í tl. 6aw, XVII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 18/2018 frá 9. febrúar 2018. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 23. ágúst 2018, bls. 1-2.
  2. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2317 frá 13. desember 2017 um viðurkenningu á valfrjálsu áætluninni "Red Tractor Farm Assurance Combinable Crops & Sugar Beet" til að sýna fram á að viðmiðunum um sjálfbærni samkvæmt tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 98/70/EB og 2009/28/EB hafi verið fylgt, sem vísað er til í tl. 6ax, XVII. kafla II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 57/2018 frá 23. mars 2018. Ákvörðunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 49 frá 26. júlí 2018, bls. 11-12.

2. gr.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2164 frá 17. nóvember 2017 um viðurkenningu á valfrjálsu áætluninni "RTRS EU RED" til að sýna fram á að viðmiðunum um sjálfbærni samkvæmt tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 98/70/EB og 2009/28/EB hafi verið fylgt.
  2. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2317 frá 13. desember 2017 um viðurkenningu á valfrjálsu áætluninni "Red Tractor Farm Assurance Combinable Crops & Sugar Beet" til að sýna fram á að viðmiðunum um sjálfbærni samkvæmt tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 98/70/EB og 2009/28/EB hafi verið fylgt.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 13. tölul. 1. mgr. 11. gr. efnalaga nr. 61/2013.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 9. október 2018.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.