Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

816/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 456/1994 um fuglaveiðar og nýtingu hlunninda af villtum fuglum, með síðari breytingum.

1. gr.

5. tl. 2. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Árin 2019-2021 er heimilt að veiða rjúpu frá og með 1. nóvember til og með 30. nóvember, frá og með föstudögum til og með þriðjudögum á því tímabili.

Rjúpnaveiðar eru þó alltaf óheimilar á friðuðu svæði, sbr. 9. gr.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 7. gr. og 17. gr. laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 30. ágúst 2019.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica