Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 3. mars 2023

811/2021

Reglugerð um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu.

1. gr.

Gjaldtaka er heimil innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu eftir því sem kveðið er á um í reglugerð þessari. Virðisaukaskattur er innifalinn í gjaldi samkvæmt 2. gr. Virðisaukaskattur er einnig innifalinn í gjaldi samkvæmt töluliðum 6.-10. 3. gr.

2. gr.

Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldsvæði á þjónustusvæði A í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:

1. Almennt gjald 1.500 kr.
2. Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum 900 kr.
3. Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar 1.300 kr.

Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að tjaldsvæði er gjaldfrjáls.

Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldsvæði á þjónustusvæði B í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl:

1. Almennt gjald 1.250 kr.
2. Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum 700 kr.
3. Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar 1.000 kr.

Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að tjaldsvæði er gjaldfrjáls.

Gjald fyrir hverja gistieiningu í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl á þjónustusvæðum A og B er 250 kr. á nótt.

Gjald fyrir gistingu í skála A í eina nótt:

1. Almennt gjald 4.500 kr.
2. Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum 2.300 kr.
3. Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar 3.500 kr.

Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að skála A er gjaldfrjáls.

Gjald fyrir gistingu í skála B í eina nótt:

1. Almennt gjald 3.500 kr.
2. Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum 1.500 kr.
3. Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar 2.750 kr.

Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að skála B er gjaldfrjáls.

Gjald fyrir sumarstæði. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu í Skaftafelli:

1. 1 mánuður 26.000 kr.
2. 1 mánuður með rafmagni 34.000 kr.
3. 2 mánuðir 52.000 kr.
4. 2 mánuðir með rafmagni 68.000 kr.
5. 3 mánuðir 78.000 kr.
6. 3 mánuðir með rafmagni 102.000 kr.

3. gr.

Gjald fyrir aðra þjónustu:

1. Sturtugjald, eitt skipti 300 kr.
2. Rafmagn á tjaldsvæði, pr. sólarhring 10 amp. tengill 1.000 kr.
3. Rafmagn á tjaldsvæði, pr. sólarhring 16 amp. tengill 1.350 kr.
4. Afnot af þvottavél, eitt skipti 500 kr.
5. Afnot af þurrkara, eitt skipti 500 kr.
6. Afnot af aðstöðu í skála, einn dagur (án gistingar) 500 kr.
7. Útseld vinna sérfræðinga 16.000 kr.
8. Útseld vinna landvarða 12.000 kr.
9. Útgáfa leyfa, stærri verkefni, samningar á grundvelli reglugerðar um atvinnutengda starfsemi 50.000 kr.
10. Útgáfa leyfa, önnur verkefni 25.000 kr.

Aðgangur að neti og sturtum er innifalinn í tjaldsvæðisgjaldi á þjónustusvæði A, sbr. 2. gr.

4. gr.

Svæðisgjald í Skaftafelli (sólarhringsgjald frá kl 00.00 - 24.00):

1. Flokkur A - Fólksbifreið, 5 manna og færri 750 kr.
2. Flokkur B - Fólksbifreið, 6-9 manna 1.000 kr.
3. Flokkur D - Rúta, 19-32 manna 1.800 kr.
4. Flokkur D - Rúta, 19-32 manna 3.500 kr.
5. Flokkur E - Rúta, 33-64 manna 6.400 kr.
6. Flokkur F - Rúta 65 manna og fleiri 6.400 kr,
7. Bifhjól 300 kr.

Svæðisgjald er innifalið í tjaldsvæðisgjaldi, sbr. 2. gr.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 21. gr. laga nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 610/2020 um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 7. júlí 2021.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Hugi Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.