Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

715/2018

Reglugerð um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu. - Brottfallin

1. gr.

Gjaldtaka er heimil innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu eftir því sem kveðið er á um í reglugerð þessari.

2. gr.

Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldstæði í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl. Svæðisgjald, sbr. 4. gr. og gistináttaskattur eru innifalin í gjaldinu:

    1. Almennt gjald kr.   1.900
    2. 13 til 17 ára börn, í fylgd með fullorðnum kr.      800

Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls. Veittur er 300 kr. afsláttur af gjaldi fyrir hverja aukanótt ef greitt er samtímis fyrir allar næturnar.

Gjald fyrir gistingu í skála A í eina nótt. Svæðisgjald, sbr. 4. gr. og gistináttaskattur eru innifalin í gjaldinu:

    1. Almennt gjald kr.   5.000
    2. Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum kr.   2.500

Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að skála A er gjaldfrjáls.

Gjald fyrir gistingu í skála B í eina nótt. Svæðisgjald, sbr. 4. gr. og gistináttaskattur eru innifalin í gjaldinu:

    1. Almennt gjald kr.   4.000
    2. Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum kr.   2.500

Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að skála B er gjaldfrjáls.

3. gr.

Gjald fyrir aðra þjónustu:

    1. Sturtugjald, eitt skipti kr.      500
    2. Rafmagn á tjaldsvæði, pr. sólarhring kr.   1.000
    3. Afnot af þvottavél, eitt skipti kr.      500
    4. Afnot af þurrkara, eitt skipti kr.      500
    5. Afnot af aðstöðu í skála, einn dagur (án gistingar) kr.       500
    6. Veitt aðstoð við ferðamenn kr.   16.000
    7. Útgáfa leyfa, stór verkefni kr.  25.000
    8. Útgáfa leyfa, lítil verkefni kr.  10.000
    9. Aðgangur að íshellum, pr. mann kr.    1.000
  10. Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum kr.       500

Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að íshellum er gjaldfrjáls.

Sturtugjald er innifalið í tjaldsvæðisgjaldi, sbr. 2. gr.

4. gr.

Svæðisgjald í Skaftafelli (sólarhringsgjald frá kl. 00.00 - 24.00):

  1. Flokkur A - Fólksbifreið, 5 manna og færri kr.      750
  2. Flokkur B - Fólksbifreið, 6-9 manna kr.   1.000
  3. Flokkur C - Rúta, 10-18 manna kr.   1.800
  4. Flokkur D - Rúta, 19-32 manna kr.   3.500
  5. Flokkur E - Rúta, 33-64 manna kr.   6.400
  6. Flokkur F - Rúta, 65 manna og fleiri kr.   9.000
  7. Bifhjól kr.      300

Svæðisgjald er innifalið í tjaldsvæðisgjaldi, sbr. 2. gr.

5. gr.

Reglugerð þessi, er sett samkvæmt heimild í 21. gr. laga nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 727/2017 um gjaldtöku vegna tjald­stæða og þjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 13. júlí 2018.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Kjartan Ingvarsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica