Umhverfis- og auðlindaráðuneyti

650/2017

Reglugerð um gjaldtöku vegna tjaldsvæða og þjónustu í Vatnajökulsþjóðgarði. - Brottfallin

1. gr.

Gjaldtaka er heimil innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu, eftir því sem nánar er kveðið á um í 2., 3. og 4. gr. Virðisaukaskattur og gistináttaskattur er innifalinn í gjaldi samkvæmt 2. gr. Virðisaukaskattur er innifalinn í gjaldi samkvæmt 3. og 4. gr.

2. gr.

Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldstæði í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl (*):

    1. Almennt gjald kr. 1.700
    2. 13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum kr.    800

Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls.

Gjald fyrir gistingu í skála A í eina nótt:

    1. Almennt gjald kr. 6.500
    2. 13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum kr. 3.250

Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að skála A er gjaldfrjáls.

Gjald fyrir gistingu í skála B í eina nótt:

    1. Almennt gjald kr. 5.000
    2. 13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum kr. 2.500

Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum, að skála B er gjaldfrjáls.
_____________
(*) Þjónustugjald er innifalið í tjaldsvæðisgjaldi.

3. gr.

Gjald fyrir aðra þjónustu:

    1. Sturtugjald, eitt skipti kr.      500
    2. Rafmagn fyrir húsbíl, hjólhýsi og fellihýsi, pr. sólarhring kr.   1.000
    3. Afnot af þvottavél, eitt skipti kr.      500
    4. Afnot af þurrkara, eitt skipti kr.      500
    5. Gjald vegna almenns aðgangs að aðstöðu í skála, einn dagur (án gistingar) kr.      500
    6. Sértæk þjónusta við ferðamenn sem felur í sér sérstakt vinnuframlag af hálfu starfsmanna þjóðgarðsins, gjald fyrir hverja klst. kr. 16.000
    7. Útgáfa atvinnuleyfa kr. 25.000
    8. Kortabæklingur, stk. kr.      500
    9. Aðrir bæklingar, stk. kr.      400
  10. Aðgangsgjald í íshella, pr. mann kr.   1.000
    13 til 16 ára börn, í fylgd með fullorðnum kr.      500

Aðgangur 12 ára og yngri barna, í fylgd með fullorðnum er gjaldfrjáls.

4. gr.

Þjónustugjald í Skaftafelli (sólarhringsgjald frá kl. 00.00 - 24.00):

Gildir frá 1. ágúst 2017.

    1. Flokkur A - Fólksbifreið, 5 manna eða færri kr.    600
    2. Flokkur B - Fólksbifreið 6-9 manna kr.    900
    3. Flokkur C - Rúta, 10-18 manna kr. 1.800
    4. Rútur D, E og F kr. 3.600
    5. Bifhjól kr.    300

5. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 21. gr. laga nr. 60/2007, um Vatnajökuls­þjóðgarð, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð um gjaldtöku vegna tjaldstæða og þjónustu í Vatnajökuls­þjóðgarði, nr. 877/2015.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 14. júlí 2017.

F. h. r.

Jón Geir Pétursson.

Stefán Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica