Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 19. júní 2020

420/2019

Reglugerð um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu.

1. gr.

Gjaldtaka er heimil innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu eftir því sem kveðið er á um í reglugerð þessari. Virðisaukaskattur og gistináttaskattur er innifalinn í gjaldi samkvæmt 2. gr. Virðisaukaskattur er innifalinn í gjaldi samkvæmt 3. og 4. gr.

2. gr.

Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldstæði á þjónustusvæði A í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:

1. Almennt gjald kr. 1.750
2. Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum kr. 1.000
3. Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar kr. 1.500

Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls. Veittur er 300 kr. afsláttur af gjaldi fyrir hverja aukanótt ef greitt er samtímis fyrir allar næturnar.

Gjald fyrir einn í gistingu í eina nótt á tjaldstæði á þjónustusvæði B í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:

1. Almennt gjald kr. 1.500
2. Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum kr. 800
3. Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar kr. 1.250

Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að tjaldstæði er gjaldfrjáls. Veittur er 300 kr. afsláttur af gjaldi fyrir hverja aukanótt ef greitt er samtímis fyrir allar næturnar.

Gjald fyrir hverja gistieiningu í tjaldi, fellihýsi, tjaldvagni, hjólhýsi eða húsbíl á þjónustusvæðum A og B er 500 kr. á nótt.

Gjald fyrir gistingu í skála A í eina nótt. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:

1. Almennt gjald kr. 5.000
2. Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum kr. 2.500
3. Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar kr. 4.000

Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að skála A er gjaldfrjáls. Veittur er 300 kr. afsláttur af gjaldi fyrir hverja aukanótt ef greitt er samtímis fyrir allar næturnar.

Gjald fyrir gistingu í skála B í eina nótt. Svæðisgjald, sbr. 4. gr., er innifalið í gjaldinu:

1. Almennt gjald kr. 4.000
2. Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum kr. 2.000
3. Eldri borgarar (67 ára og eldri) og öryrkjar kr. 3.250

Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að skála B er gjaldfrjáls. Veittur er 300 kr. afsláttur af gjaldi fyrir hverja aukanótt ef greitt er samtímis fyrir allar næturnar.

3. gr.

Gjald fyrir aðra þjónustu:

1. Sturtugjald, eitt skipti kr. 300
2. Rafmagn á tjaldsvæði, pr. sólarhring kr. 1.000
3. Afnot af þvottavél, eitt skipti kr. 500
5. Afnot af þurrkara, eitt skipti kr. 500
5. Afnot af aðstöðu í skála, einn dagur (án gistingar) kr. 500
6. Útseld vinna sérfræðinga kr. 16.000
7. Útseld vinna landvarða kr. 12.000
8. Útgáfa leyfa, stór verkefni kr. 50.000
9. Útgáfa leyfa, lítil verkefni kr. 10.000
10. Aðgangur að íshellum, pr. mann kr. 1.000
Börn, 13 til 17 ára, í fylgd með fullorðnum kr. 500

Aðgangur barna, 12 ára og yngri, í fylgd með fullorðnum, að íshellum er gjaldfrjáls.

Sturtugjald er innifalið í tjaldsvæðisgjaldi á þjónustusvæði A, sbr. 2. gr.

4. gr.

Svæðisgjald í Skaftafelli (sólarhringsgjald frá kl. 00.00 - 24.00):

1. Flokkur A - Fólksbifreið, 5 manna og færri kr. 750
2. Flokkur B - Fólksbifreið, 6-9 manna kr. 1.000
3. Flokkur C - Rúta, 10-18 manna kr. 1.800
4. Flokkur D - Rúta, 19-32 manna kr. 3.500
5. Flokkur E - Rúta, 33-64 manna kr. 6.400
6. Flokkur F - Rúta, 65 manna og fleiri kr. 9.000
7. Bifhjól kr. 300

Svæðisgjald er innifalið í tjaldsvæðisgjaldi, sbr. 2. gr.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 21. gr. laga nr. 60/2007, um Vatnajökulsþjóðgarð, og öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 715/2018 um gestagjöld innan Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir veitta þjónustu og aðgang að svæðinu.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 6. maí 2019.

F. h. r.

Sigríður Auður Arnardóttir.

Stefán Guðmundsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.