Við 6. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/1771 frá 12. september 2023 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2017/373 að því er varðar kerfi og kerfishluta rekstrarstjórnunar flugumferðar og flugleiðsöguþjónustu og um niðurfellingu reglugerða (EB) nr. 1032/2006, (EB) nr. 633/2007 og (EB) nr. 262/2009, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 162/2025 frá 13. júní 2025. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54 frá 4. september 2025, bls. 504-527.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 188. gr. laga um loftferðir nr. 80/2022 og öðlast þegar gildi. Á sama tíma falla úr gildi reglugerð nr. 601/2008 um kröfur um sjálfvirkt kerfi til að skiptast á fluggögnum milli flugstjórnardeilda, reglugerð nr. 108/2009 um kröfur varðandi beitingu reglna um samskipti milli flugstjórnardeilda við skeytasendingar vegna flugs og reglugerð nr. 693/2010 um kröfur um samræmda úthlutun og notkun á spurnakóðum kögunarsvarratsjár fyrir samevrópska loftrýmið.
Innviðaráðuneytinu, 1. október 2025.
F. h. r.
Árni Freyr Stefánsson.
Vala Hrönn Viggósdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 15. október 2025