1. gr.
Við 2. gr. reglugerðarinnar bætist ný málsgrein, sem verður 3. mgr., svohljóðandi:
Þjóðskrá Íslands er heimilt að skrá erlenda kennitölu eða númer og gildistíma ferðaskilríkja erlendra ríkisborgara sem eru með eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
2. gr.
Við 8. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, k-liður, svohljóðandi:
k. Erlend kennitala eða númer og gildistími erlendra ferðaskilríkja.
3. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi er sett með heimild í 23. gr. laga um skráningu einstaklinga, nr. 140/2019, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 24. maí 2023.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Hermann Sæmundsson.