Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Breytingareglugerð

118/2022

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1342/2020, um ráðstöfun leiguíbúða skv. 37. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum.

1. gr.

Í stað fjárhæðanna "5.731.000 kr.", "8.025.000 kr." og "1.433.000 kr." í 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar kemur: 5.995.000 kr.; 8.394.000 kr. og: 1.499.000 kr.

2. gr.

Í stað fjárhæðarinnar "6.186.000 kr." í 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 6.471.000 kr.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 3. mgr. 37. gr. og 50. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998, með síðari breytingum, öðlaðist gildi 1. janúar 2022.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 17. janúar 2022.

Sigurður Ingi Jóhannsson
innviðaráðherra.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.