Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

625/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 78/2006 um skylduvátryggingar vegna loftferða.

1. gr. Innleiðing.

9. gr. reglugerðarinnar hljóðar svo:

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins og framkvæmdastjórnarinnar með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 785/2004 frá 21. apríl 2004 um kröfur um vátryggingar fyrir flugrekendur og umráðendur loftfara með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka EES-samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 157/2004 frá 29. október 2004, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 20 frá 28. júní 2007, bls. 136-141.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1118 frá 27. apríl 2020 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 785/2004 um kröfur um vátryggingar fyrir flugrekendur og umráðendur loftfara, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 149/2021 frá 23. apríl 2021, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34 frá 12. maí 2021, bls. 94-95.

2. gr.

Viðauki við reglugerð þessa fellur brott.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 131. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 14. maí 2021.

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Valgerður B. Eggertsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.