Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

624/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 237/2014 um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara.

1. gr. Innleiðing.

Við 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/2036 frá 9. desember 2020 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar kröfur um hæfni og þjálfunaraðferðir fyrir flugliða og frestun á framkvæmd tiltekinna ráðstafana í tengslum við COVID-19 heimsfaraldurinn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 151/2021 frá 23. apríl 2021. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjónartíðindi Evrópusambandsins nr. 37 frá 27. maí 2021, bls. 124-131.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 4. mgr. 37. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 31. maí 2021.

F. h. r.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.