Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

603/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 989/2016, um skipsbúnað, með síðari breytingum.

1. gr.

B-liður 1. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/1170 frá 16. júlí 2020 um hönnunar-, smíða- og nothæfiskröfur sem og prófunarstaðla fyrir búnað um borð í skipum og um niðurfellingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2019/1397, skv. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 128/2020 frá 25. september 2020. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 69, 29. október 2020 bls. 337.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 4. mgr. 1. gr. laga nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 12. maí 2021.

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Eggert Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.