Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Breytingareglugerð

230/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga.

1. gr.

3. mgr. 20. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Byggðasamlög, sameignarfélög, sameignarfyrirtæki og önnur félagaform sem eru með ótakmarkaðri ábyrgð sveitarfélags, skulu færð inn í samantekin reikningsskil sveitarfélags miðað við hlutfallslega ábyrgð sveitarfélags, þ.e. sveitarfélag skal færa hlutdeild þess í einstökum liðum rekstrar og efnahags, óháð stærð eignarhluta.

2. gr.

Í stað fylgiskjala I-IV með reglugerð nr. 1212/2015 koma ný fylgiskjöl I-IV sem birt eru með reglugerð þessari.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 75. gr. sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011, öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda fyrir reikningsár sem hefst 1. janúar 2021 eða síðar.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 15. febrúar 2021.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.