Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

1194/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 277/2008 um aðgerðir til að tryggja flugöryggi og skrá yfir flugrekendur er ekki uppfylla viðeigandi öryggiskröfur.

1. gr.

Við c-lið 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 34, sem orðast svo:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2105 frá 9. desember 2019 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 um skrá yfir flugrekendur sem bannað er að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambandsins.

 

2. gr.

Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/2105 frá 9. desember 2019 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 474/2006 um skrá yfir flugrekendur sem er bannað að stunda flugrekstur eða sæta rekstrartakmörkunum innan Sambands­ins, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 139/2020 frá 25. sept­ember 2020. Framkvæmdarreglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 69, frá 29. október 2020, bls. 615-623.

 

3. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 5. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 25. nóvember 2020.

 

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Valgerður B. Eggertsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica