Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

1193/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1127/2014 um kröfur um afköst og rekstrarsamhæfi kögunar í samevrópska loftrýminu.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi töluliður:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/587 frá 29. apríl 2020 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1206/2011 um kröfur um auðkenningu loftfars í tengslum við kögun í samevrópska loftrýminu og framkvæmdarreglugerð (ESB) nr. 1207/2011 um kröfur um afköst og rekstrarsamhæfi kögunar í samevrópska loftrýminu, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2020 frá 18. júní 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 62 frá 24. september 2020.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr. a., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 25. nóvember 2020.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Valgerður B. Eggertsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.