Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

491/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.

1. gr.

Við 53. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliður:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1583 frá 25. september 2019 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 um ítarlegar ráðstafanir til að framfylgja sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd að því er varðar ráðstafanir vegna öryggis á netinu, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 44 frá 20. mars 2020. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 29 frá 7. maí 2020, bls. 202.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 70. gr. d., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, öðlast gildi 31. desember 2020.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 25. maí 2020.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.