Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1058/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 48/2012 um sameiginlegar reglur um flugrekstur og flugþjónustu innan Evrópska efnahagssvæðisins.

1. gr.

2. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar verður stafliður a.

2. gr.

Við 9. gr. reglugerðarinnar bætist stafliður b sem orðast svo:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2 frá 11. desember 2018 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1008/2008 um sameiginlegar reglur um rekstur flugþjónustu í Bandalaginu, eins og hún er tekin upp í EES-samninginn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 191/2019 frá 10. júlí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 58, frá 18. júlí 2019, bls. 242-243.

3. gr.

Markmið eftirfarandi ákvæða er að kveða á um tímabundnar ráðstafanir sem gilda um flutninga í lofti milli Evrópska efnahagssvæðisins og Bretlands í kjölfar útgöngu þess úr Evrópusambandinu.

Við 9. gr. reglugerðarinnar bætast stafliðir c og d sem orðast svo:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/494 um tiltekna þætti flugöryggis að því er varðar útgöngu Sameinaða konungsríkisins Stóra-Bretlands og Norður-Írlands úr Sambandinu frá 25. mars 2019, eins og hún er tekin upp í EES-samninginn sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 42/2019 frá 29. mars 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 38, frá 16. maí 2019, bls. 39-43.
  2. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/502 um sameiginlegar reglur til að tryggja grunntengjanleika í flugsamgöngum að því er varðar útgöngu Sameinaða konungsríkisins Stóra-Bretlands og Norður-Írlands úr Sambandinu frá 25. mars 2019, eins og hún er tekin upp í EES-samninginn sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2019 frá 11. apríl 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 38, frá 16. maí 2019, bls. 176-186.

4. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 3. gr., 7. mgr. 28. gr., 80. gr., 85. gr. a., 7. mgr. 125. gr. og 146. gr. a., sbr. 145. gr. laga um loftferðir, nr. 60/1998, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi að undanskilinni 3. gr. sem öðlast gildi þann dag er Bretland gengur úr Evrópusambandinu án útgöngusamnings.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 14. nóvember 2019.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.