Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Breytingareglugerð

1053/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 750/2016 um flugvernd.

1. gr.

Við 53. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi stafliður:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/413 frá 14. mars 2019 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 að því er varðar þriðju lönd sem viðurkennt er að beiti flugverndarkröfum sem jafngilda sameiginlegum grunnkröfum um flugvernd í almenningsflugi, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 41/2019 frá 29. mars 2019 um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 38, frá 16. maí 2019, bls. 32‑38.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 70. gr. d., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum, og öðlast gildi þann dag er Bretland gengur úr Evrópusambandinu án útgöngusamnings.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 12. nóvember 2019.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.