Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

1300/2018

Hafnarreglugerð fyrir hafnir Norðurþings.

1. gr. Stærð og takmörk hafnanna.

Hafnir Norðurþings eru: Húsavíkurhöfn, Kópaskershöfn og Raufarhafnarhöfn.

Stærð og takmörk hafnarsvæðis fyrir Húsavíkurhöfn eru:

  1. Á sjó: Skilgreint hafnarsvæði er austan línu sem hugsast dregin úr Kaldbaksnefi fremst í fyrirhugaðan Snásugarð, eins og hann er sýndur í aðalskipulagi Norðurþings, og með honum að utan í svonefndar Snásur í Húsavíkurhöfða.
  2. Á landi: Í samræmi við aðalskipulag Norðurþings á hverjum tíma.

Stærð og takmörk hafnarsvæðis fyrir Kópaskershöfn eru:

  1. Á sjó: Hafnarsvæði Kópaskershafnar nær að austan frá suðurenda lóðar Fjallalambs á Röndinni 3 eftir línu sem hugsast dregin til vesturs í syðsta enda sjóvarnargarðs að vestan.
  2. Á landi: Í samræmi við aðalskipulag Norðurþings á hverjum tíma.

Stærð og takmörk hafnarsvæðis fyrir Raufarhafnarhöfn eru:

  1. Á sjó: Hafnarsvæði Raufarhafnarhafnar takmarkast af línu sem hugsast dregin úr norðausturhorni Raufarhafnarhöfða í Hólshöfðatá.
  2. Á landi: Í samræmi við aðalskipulag Norðurþings á hverjum tíma.

Landsvæði hafnanna skiptast í:

  1. Hafnarbakka og bryggjur.
  2. Farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði.
  3. Götur.
  4. Lóðir, iðnaðar- og baksvæði.

2. gr. Stjórn hafnanna.

Norðurþing er eigandi hafnanna. Sveitarstjórn Norðurþings fer með yfirstjórn hafnarmála, en framkvæmdastjórn skal falin hafnarstjórn og hafnarstjóra.

Hafnarstjórn er kjörin af sveitarstjórn skv. þeim reglum er gilda um kjör fastra nefnda sveitarstjórnar. Hafnarstjórn skipa 3 fulltrúar og 3 til vara og er kjörtímabil þeirra hið sama og sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn kýs formann og varaformann úr hópi kjörinna hafnarstjórnarmanna. Stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum.

Auk hinna kjörnu fulltrúa skal hafnarstjóri sitja fundi hafnarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt.

3. gr. Starfs- og valdsvið hafnarstjórnar.

Hafnarstjórn hefur umsjón með fjármálum, rekstri, viðhaldi og nýbyggingum hafnanna. Leita skal staðfestingar sveitarstjórnar á fjárhagsáætlun hafnarsjóðs svo og lántökum hafnarsjóðs til lengri tíma en yfirstandandi fjárhagsárs.

Hafnarstjórn hefur ákvörðunarvald um daglegan rekstur hafnanna, svo sem ráðstöfun á aðstöðu í eigu hafnarsjóðs, þ.m.t. leigu á húsnæði í eigu hafnanna og landi þeirra.

Hafnarstjórn veitir leyfi til starfsemi á hafnarsvæðum og hefur vald til að banna eða takmarka afnot hafnarsvæða fyrir starfsemi sem hún telur torvelda eðlilega hafnarstarfsemi.

Hafnarstjórn gerir tillögur til sveitarstjórnar varðandi skipulagsmál á hafnarsvæðum, enda hafi tillögurnar fengið umfjöllun skipulags- og umhverfisnefndar. Byggingarmál á hafnarsvæðum skulu hljóta umfjöllun hafnarstjórnar áður en þau eru lögð fyrir sveitarstjórn. Hafnarstjórn skal hafa samráð við Vegagerðina við tillögugerð er varðar skipulagsmál á hafnarsvæðum.

4. gr. Starfs- og valdsvið hafnarstjóra.

Hafnarstjórn ræður hafnarstjóra, með samþykki sveitarstjórnar, til að fara með daglega stjórn hafnanna í umboði hennar. Hafnarstjóri skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði gildandi hafnalaga, reglugerð um hafnamál auk reglugerðar þessarar og ber ábyrgð á að rekstur hafnanna sé í samræmi við þau. Hann skal í starfi sínu að öðru leyti fara eftir samþykktum hafnarstjórnar og sveitarstjórnar. Hafnarstjóri hafna undirbýr mál sem leggja á fyrir hafnarstjórn, veitir viðtöku erindum til hennar og sér um að framfylgja samþykktum hennar. Hann veitir hafnarstjórn og sveitarstjórn upplýsingar um málefni hafnanna og ráðgjöf um málefni er varða rekstur þeirra. Hann sér um að fjárhagsáætlun sé fylgt og ber ábyrgð á fjárreiðum hafnarsjóðs. Hafnarstjóri er yfirmaður allra starfsmanna hafnanna og fer með stjórnun starfsmannamála vegna þeirra, þar með talið ráðningu undirmanna sinna og uppsagnir, í samráði við hafnarstjórn.

Hafnarstjóri sér um að gætt sé reglu á hafnarsvæðunum hvort sem er á sjó eða landi. Öllum er skylt að hlýða fyrirmælum hans innan marka hafnarsvæða í Norðurþingi, eða þeirra sem hann felur störf við eftirlit og gæslu innan sömu svæða.

5. gr. Um aðra starfsmenn hafnanna.

Hafnarstarfsmenn sem hafa umsjón með eignum hafnanna, gæta reglu og sinna skipaþjónustu, skulu bera skilríki um starf sitt og/eða einkennisfatnaði samkvæmt ákvörðun hafnarstjórnar. Starfsmenn hafna skulu ávallt vera snyrtilegir til fara. Starfsmenn hafnanna skulu gæta allrar kurteisi í starfi en skipunum þeirra innan hafnarsvæða ber að hlýða þegar í stað. Telji einhver sig órétti beittan af hálfu starfsmanna hafnanna getur hann lagt fram formlega kvörtun til hafnarstjóra. Tilskipunum starfsmanns skal þó hlýtt engu að síður.

6. gr. Hafnsaga og önnur þjónusta við skip.

Öll skip lengri en 60 m (mesta lengd) svo og skip sem flytja bensín, olíur og hættulegan varning, skulu taka hafnsögumann um borð við komu, brottför og siglingar um hafnarsvæði hafna Norðurþings. Undanþegin hafnsögu eru innlend fiskiskip. Hafnarstjóri getur þó veitt undanþágu frá hafnsöguskyldu ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.

Sérhvert skip, sem ætlar til hafna Norðurþings og fellur undir 1. mgr. 6. gr. eða óskar eftir hafnsögu, skal gera boð um það til hafnaryfirvalda með minnst 6 klst. fyrirvara. Skal hafnsögumaður fara til móts við skipið í fyrirfram ákveðna hafnsögustaðsetningu viðkomandi hafnar. Skipstjóri skal tilkynna hafnaryfirvöldum um fyrirhugaðan brottfarartíma með að lágmarki 1 klst. fyrirvara og skal hafnsögumaður fylgja skipi úr hafnsögu viðkomandi hafnar.

Hafnsögumaður vísar skipinu leið að og frá höfn og má eigi yfirgefa það án samþykkis skipstjóra, fyrr en skipið er komið í viðlegu eða á örugga stefnu frá höfn. Heimilt er hafnsögumanni meðan hann hefur ekki lokið starfi sínu að banna hverjum þeim sem ekki á lögmætt erindi að koma á skipsfjöl. Meðan hafnsögumaður dvelur um borð ber skipinu að sjá honum fyrir fæði.

Hafnarstjóra hafna er heimilt að veita skipstjóra skips sem skal lúta hafnsögu skv. þessari grein, undanþágu frá hafnsögu. Skilyrði undanþágu er að skipstjóri sé kunnugur staðháttum, hafi siglt viðkomandi eða sambærilegu skipi að lágmarki 10 sinnum til hafnarinnar á síðastliðnu ári og ekkert athugavert hafi verið við þær siglingar. Undanþágan gildir einungis til siglinga á það eða þau hafnarsvæði og bryggjukanta, sem viðkomandi hefur reglulega komið á. Nú hefur skipstjóri ekki gegnt skipstjórnarstörfum í 1 ár og fellur undanþágan þá niður. Undanþága frá hafnsögu skuldbindur viðkomandi skipstjóra til að hafa náið talstöðvarsamband við hafnsögumenn og hlíta í einu og öllu fyrirmælum þeirra, ella má svipta þá undanþágunni fyrirvaralaust. Hafnarstjóri hafna getur veitt undanþágu frá hafnsöguskyldu ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi og getur að sama skapi dregið undanþágur til baka hvenær sem er og fyrirvaralaust, þyki ástæða til.

Hafnasamlag Norðurlands bs. veitir eftir atvikum aðstoð dráttarbáta skv. gildandi gjaldskrá. Hafnir Norðurþings sjá um bindingu skipa, sölu og afgreiðslu vatns og rafmagns. Hafnsögumaður ákveður notkun báta og mannafla eftir aðstæðum hverju sinni.

Dráttarbátar í þjónustu við skip eru á ábyrgð þess skips er þeir aðstoða, frá því þeir taka við taug, eða fyrirmælum stjórnanda skipsins, er aðstoðar nýtur, og þar til taug er sleppt eða fyrirmæli gefin um að aðstoð sé lokið. Hafnsögumaður/skipstjórnarmaður skal vera í skipi, er það nýtur aðstoðar dráttarbáts.

Öllum olíuskipum, skipum sem ekki hafa bógskrúfu og skipum með hættulegan farm er skylt að hafa dráttarbát til að tryggja öryggi við komur og brottfarir til og frá höfnum Norðurþings,

Hafnarstjóri eða starfsmenn hafna, í umboði hafnarstjóra, geta þó krafist þess að skipstjórar allra skipa sem fara ætla um hafnarsvæði Norðurþings noti dráttarbát sér til aðstoðar og öryggis við komu eða brottför úr höfn, ef hann telur ástæðu til. Skipstjórar skipa geta óskað eftir aðstoð dráttarbáta telji þeir sig þurfa slíka þjónustu af einhverjum ástæðum. Tilkynna þarf óskir þar um með að lágmarki 24 klst. fyrirvara.

7. gr. Löggæsla á hafnarsvæðum.

Lögreglan í umdæmi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra hefur á hendi almenna löggæslu á svæðum hafna Norðurþings.

Þeim sem ekki eiga lögmætt erindi á hafnarsvæðin er óheimilt að dvelja þar ef þeir torvelda eða hindra lestun, losun eða önnur störf, sem þar eru unnin. Hafnarstjóra og starfsmönnum hafnanna er heimilt að banna ónauðsynlegan akstur hvers konar ökutækja og ónauðsynlega umferð gangandi fólks um bryggjur, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði á hafnarsvæðunum ef þörf krefur. Fólk sem fer um hafnarsvæði er þar ávallt á eigin ábyrgð.

Óheimilt er að skjóta af byssum eða öðrum skotvopnum við hafnirnar eða í þeim nema að fengnu leyfi lögreglustjóra, hafnarstjóra og yfirvalda sveitarfélagsins. Sömuleiðis er bannað að skjóta flugeldum á hafnarsvæðunum án leyfis hafnarstjóra.

Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðunum nema að fengnu leyfi hafnarstjóra. Fiskveiðar á hafnarsvæðum mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Óheimilt er með öllu að leggja veiðarfæri á merktar siglingaleiðir. Starfsmenn hafnanna skulu fjarlægja veiðarfæri sem lögð eru á merktar siglingaleiðir, á kostnað eiganda verði hann ekki tafarlaust við tilskipunum þess efnis að fjarlægja þau, enda teljast þau vera í reiðileysi. Hafnarstarfsmönnum ber ekki skylda til að geyma veiðarfæri sem fjarlægð eru af þessum sökum og bera ekki ábyrgð á skemmdum sem verða á veiðarfærunum við færslu þeirra.

Hafnarstjóra skal þegar í stað tilkynnt um það sem bjargað er í höfnunum. Hann gefur lögreglunni skýrslu, telji hann þess þörf.

8. gr. Bryggjur, skipsflök og hlutir í reiðileysi.

Ef skip lendir á grynningum eða sekkur þar sem það, að áliti hafnarstjóra, tálmar greiðri notkun hafnanna, skal það fært burtu svo fljótt sem auðið er af eiganda, umráðamanni eða öðrum sem málið varðar. Verði dráttur á því, má hafnarstjóri láta færa skipið burt á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og skal það flutt á öruggan stað, að vali og eftir mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi skip, til lúkningar á kostnaði, á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja skipið tafarlaust. Sala fari fram á kostnað og ábyrgð eiganda og/eða umráðamanns skips.

Skipsflök má ekki draga á land á hafnarsvæðum án leyfis hafnarstjóra.

Ef skip, bátar, bryggjur, flutningstæki á landi eða annar búnaður, í eigu annarra en hafnanna, er í reiðileysi á hafnarsvæði og/eða veldur óþrifnaði eða hættu, þá skal hafnarstjóri fyrirskipa eiganda og/eða umráðamanni að gera nauðsynlegar úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt, má fjarlægja viðkomandi hlut á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og koma fyrir í geymslu á öruggum stað, eftir vali og mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi hlut á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir, til lúkningar á kostnaði, að undangenginni áskorun til eiganda og eða umráðamanns um að fjarlægja hlutinn tafarlaust. Sala fari fram á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns.

9. gr. Varnir gegn mengun og óþrifnaði.

Engum úrgangi eða rusli má kasta á umráðsvæði hafna Norðurþings. Stranglega er bannað að dæla eða láta renna í hafnirnar olíu, lýsi, olíusora eða annað sem valdið getur mengun.

Hvalskurður er bannaður í eða við hafnirnar. Ekki má draga, reka eða flytja á annan hátt, inn í hafnirnar, hvali, skipsflök eða neitt það sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflun eða óþægindum í höfnunum nema að fengnu leyfi hafnarstjóra. Skulu þá gerðar forsvaranlegar ráðstafanir til að lágmarka áhrif á umhverfi hafnanna.

Skip sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti skulu áður hafa gert ráðstafanir til að eldsneyti renni ekki í sjóinn af þilfari ef óhapp verður við eldsneytistökuna. Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skipa sem ekki hafa, að mati hafnarstarfsmanna, gert viðeigandi ráðstafanir til varnar mengun.

Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lögum á hverjum tíma.

10. gr. Beiðni um og skilyrði fyrir þjónustu.

Allir þeir sem óska eftir afgreiðslu fyrir skip, láni á tækjum eða þjónustu á einn eða annan hátt hjá höfnunum, skulu snúa sér beint til starfsmanna hafnanna með beiðni þar að lútandi.

Hafnarstjóra er heimilt að neita þeim aðilum um aðstoð eða þjónustu, sem eru í vanskilum með gjöld til hafnanna og hafa ekki sinnt ítrekuðum áskorunum hafnanna um greiðslu gjaldfallinna gjalda. Í slíkri áskorun skal geta um þær afleiðingar af vanskilum sem koma fram fyrr í þessari málsgrein. Sé talin ástæða til getur hafnarstjóri farið fram á að viðskiptavinir leggi fram tryggingu fyrir greiðslu hafnargjalda.

11. gr. Hverjum skal gefa fyrirmæli.

Fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari skulu gefin skipstjóra eða stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi. Ef stýrimaður er einnig fjarverandi má gefa einhverjum öðrum af skipshöfninni skipanir og er það jafngilt því að skipstjóri hefði sjálfur tekið við skipunum.

12. gr. Um skaðabótaskyldu.

Um skaðabótaskyldu þeirra, sem á leið sinni um hafnir og hafnarsvæði, valda skemmdum á höfnum, mannvirkjum þeirra eða áhöldum, fer eftir almennum skaðabótareglum.

Ef ekki næst samkomulag um fjárhæð skaðabóta skulu þær ákveðnar með mati tveggja matsmanna, sem dómkvaddir skulu af héraðsdómi þess svæðis sem um ræðir. Skal leitað til héraðsdóms Norðurlands eystra um dómkvaðningu matsmanna. Hvorum málsaðila fyrir sig er heimilt að óska dómkvaðningar samkvæmt þessari grein. Kostnaður af mati greiðist að jöfnu.

Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, innan mánaðar frá því matsgerð samkvæmt 2. mgr. liggur fyrir og hefur verið kynnt aðilum. Til yfirmats skal dómkveðja þrjá matsmenn. Kostnaður við yfirmat greiðist af þeim sem þess krafðist, nema það sé honum í vil, þá skal kostnaður greiðast að jöfnu.

Niðurstaða dómkvaddra matsmanna, hvort sem er samkvæmt 2. eða 3. mgr. skal vera endanleg niðurstaða um bótafjárhæð.

13. gr. Kæruheimild.

Notendum hafna Norðurþings er heimilt að skjóta ákvörðunum hafnarstjórnar, samkvæmt reglugerð þessari, öðrum en gjaldskrárákvörðunum, til Samgöngustofu.

Ákvörðunum Samgöngustofu má skjóta til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.

14. gr. Brot.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Um mál út af brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála.

15. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 4. gr. hafnalaga nr. 61/2003 og 17. gr. laga nr. 41/2003 um vaktstöð siglinga, staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi hafnarreglugerð nr. 177/2011 fyrir hafnir Norðurþings.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 17. desember 2018.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.