Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

538/2018

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1127/2014 um kröfur um afköst og rekstrarsamhæfi kögunar í samevrópska loftrýminu.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi töluliður:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/386 frá 6. mars 2017 um breytingu á framkvæmdarreglugerð Evrópusambandsins (ESB) nr. 1207/2011 um kröfur um afköst og rekstrarsamhæfi kögunar í samevrópska loftrýminu, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 202 frá 27. október 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74 frá 16. nóvember 2017, bls. 149.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 6. mgr. 57. gr. a, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 8. maí 2018.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.