Fara beint í efnið

Prentað þann 24. apríl 2024

Breytingareglugerð

1203/2017

Reglugerð um breytingu á reglugerð um flugvernd nr. 750/2016.

1. gr.

Í stað orðanna "Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar" í k-lið 53. gr. kemur: Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar.

2. gr.

Seinni l-liður 53. gr. reglugerðarinnar sem birtur var með reglugerð nr. 515/2017 í Stjórnartíðindum 9. júní 2017, verður m-liður.

3. gr.

Við 53. gr. reglugerðarinnar bætast eftirfarandi liðir:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/815 frá 12. maí 2017 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2015/1998 að því er varðar nánari útlistun, samræmingu og einföldun á tilteknum flugverndarráðstöfunum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES‑nefndarinnar um breytingu á XIII. viðauka EES-samningsins, nr. 200/2017 frá 27. október 2017. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74 frá 16. nóvember 2017, bls. 566-633.
  2. Ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/3030 frá 15. maí 2017 um breytingu á ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/8005 hvað varðar nánari útlistun, samræmingu og einföldun á tilteknum flugverndarráðstöfunum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES‑nefndarinnar nr. 200/2017 frá 27. október 2017.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 14. desember 2017.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.