Innanríkisráðuneyti

438/2012

Reglugerð um sameiginlegar reglur um flæðisstjórnun flugumferðar.

1. gr.

Markmið.

Markmið reglugerðar þessarar er að koma á sameiginlegum reglum um ráðstafanir vegna flæðisstjórnunar flugumferðar í því skyni að hámarka tiltæka getu til nýtingar loftrýmis og efla flæðisstjórnunarferli flugumferðar.

2. gr.

Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um loftrými Alþjóðaflugmálastofnunarinnar innan Evrópusvæðis (ICAO EUR) og Afríku- og Indlandshafssvæðis (ICAO AFI).

3. gr.

Lögbært yfirvald.

Flugmálastjórn Íslands telst lögbært yfirvald samkvæmt reglugerð þessari.

4. gr.

Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XIII. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum hans:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 255/2010 frá 25. mars 2010 um sameiginlegar reglur um flæðisstjórnun flugumferðar, sbr. ákvörðun sameiginlegu nefndarinnar nr. 27/2012 frá 10. febrúar 2012. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 12, 1. mars 2012, bls. 647.

5. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 57. gr. a., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 27. apríl 2012.

Ögmundur Jónasson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica