Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

1085/2017

Reglugerð um notkun tölvufarskráningarkerfa.

1. gr. Efni og gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um öll tölvufarskráningarkerfi, sem í boði eru eða notuð á Íslandi.

2. gr. Innleiðing.

Með reglugerð þessari öðlast gildi reglugerð (EB) nr. 80/2009 frá 14. janúar 2009 um hátternisreglur fyrir notkun tölvufarskráningarkerfa og um niðurfellingu reglugerðar ráðsins (EBE) nr. 2299/89, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 318/2015 frá 11. desember 2015, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 5 frá 28. janúar 2016, bls. 277.

3. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem er sett með stoð í 146. gr. c laga um loftferðir, nr. 60/1998, öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð um notkun tölvufarskráningarkerfa í loftflutningum, nr. 1055/2016.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 16. nóvember 2017.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.