Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

1055/2019

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit.

1. gr.

Við 2. mgr. 56. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/502 frá 28. febrúar 2018 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/799 þar sem mælt er fyrir um kröfur um smíði, prófun, uppsetningu, virkni og viðgerðir ökurita og íhluta þeirra, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 264, 25. október 2019, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 90 frá 7. nóvember 2019, bls. 277-347.

2. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 44. gr. a. umferðarlaga nr. 50/1987, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 14. nóvember 2019.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Jónas Birgir Jónasson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.