Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 16. sept. 2023

944/2019

Reglugerð um þráðlausan fjarskiptabúnað.

I. KAFLI Gildissvið og almenn ákvæði.

1. gr. Tilgangur.

Tilgangur reglugerðarinnar er að mæla fyrir um kröfur til þeirra vara sem um getur í 3. gr. og reglur sem gilda um frjálsa för þeirra innan Evrópska efnahagssvæðisins.

2. gr. Innleiðing á ESB-gerðum.

Á grundvelli ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar, sem vísað er til hér að neðan, skulu eftirtaldar ESB-gerðir öðlast gildi hér á landi, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af II. viðauka við EES-samninginn (um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun), bókun 1 (um altæka aðlögun) og öðrum ákvæðum samningsins:

  1. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2014/53 frá 16. apríl 2014 um samræmingu laga aðildarríkjanna um að bjóða þráðlausan fjarskiptabúnað fram á markaði og niðurfellingu á tilskipun 1999/5/EB, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 89/2016 frá 29. apríl 2016, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 27, 12. maí 2016, bls. 946-990.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) 2017/1354 frá 20. júlí 2017 um hvernig eigi að leggja fram upplýsingar sem kveðið er á um í 10. mgr. 10. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2014/53, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2018 frá 6. júlí 2018, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 49, 26. júlí 2018, bls. 335-338.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/320 frá 12. desember 2018 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/53/ESB að því er varðar beitingu grunnkrafnanna, sem um getur í g-lið 3. mgr. 3. gr. þeirrar tilskipunar, til að tryggja staðsetningu innhringjanda í neyðarsamskiptum úr farartækjum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 158/2019 frá 14. júní 2019, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 58, 18. júlí 2019, bls. 57-59.
  4. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/30 frá 29. október 2021 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2014/53/ESB að því er varðar beitingu grunnkrafnanna, sem um getur í d-, e- og f-lið 3. mgr. 3. gr. þeirrar tilskipunar, til verndar netkerfis, persónuverndar og verndar gegn svikum, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2022, birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 8, 26. janúar 2023, bls. 272-276.

3. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um þráðlausan fjarskiptabúnað á íslensku yfirráðasvæði og hvernig hann er boðinn fram á markaði og notkun hans hér á landi.

Reglugerðin gildir ekki um þann búnað sem tilgreindur er í viðauka I við tilskipun (ESB) 2014/53.

Reglugerðin gildir ekki um þráðlausan fjarskiptabúnað sem er eingöngu notaður í tengslum við starfsemi sem varðar almannaöryggi, varnarmál, öryggi ríkisins, efnahagslega velferð ríkisins þegar um er að ræða starfsemi sem tengist öryggi ríkisins, og starfsemi þess á sviði refsivörslu.

Þráðlaus fjarskiptabúnaður sem fellur innan gildissviðs þessarar reglugerðar fellur ekki undir reglugerð nr. 678/2009, um raforkuvirki, að því undanskildu sem sett er fram í a-lið 1. mgr. 3. gr. í tilskipun (ESB) 2014/53.

Að öðru leyti fer með gildissvið reglugerðar þessarar samkvæmt ákvæðum þeirra ESB-gerða sem innleiddar eru með reglugerð þessari.

5. gr. Leiðbeiningar.

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur gefið út almennar leiðbeiningar um öryggi vöru auk ítarlegra leiðbeininga um framkvæmd tilskipunar 2014/53/ESB í formi leiðbeininga og viðbótarleiðbeininga. Almennt eru leiðbeiningar ekki bindandi.

Almennar leiðbeiningar um öryggi vöru: Tilkynning framkvæmdastjórnarinnar um vöruöryggi (e. Blue guide), C:2016:272:TOC.

Leiðbeiningar og viðbótarleiðbeiningar um framkvæmd tilskipunar 2014/53/ESB (e. Guide to the Radio Equipment Directive 2014/53/EU), https://ec.europa.eu/docsroom/ documents/33162 og (e. Supplementary Guidance on the LVD/EMCD/RED), https://ec.europa.eu/docsroom/ documents/29121. Leiðbeiningar þessar kunna að verða uppfærðar og er ráðlagt að miða við nýjustu leiðbeiningar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins hverju sinni.

6. gr. Samhæfðir staðlar.

Fyrirframætlað samræmi þráðlauss fjarskiptabúnaðar, sbr. 16. gr. tilskipunar (ESB) 2014/53, og fyrirframsamræmi tilkynntra samræmismatsstofa, sbr. 27. gr. sömu tilskipunar, er háð vísan til viðeigandi íslenskra staðla, sem teknir hafa verið upp á grundvelli samhæfðra Evrópustaðla og staðfestir af Staðlaráði Íslands, sbr. lög nr. 36/2003.

Í tilskipun (ESB) 2014/53 er víða vísað til orðsendingar framkvæmdastjórnar ESB í tengslum við framkvæmd tilskipunarinnar þar sem birt eru heiti og tilvísunarnúmer samhæfðra staðla. Slíkar orðsendingar eru uppfærðar óreglulega og íslenska þýðingu þeirra má nálgast í EES-viðbætinum við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins. Þar sem nokkur bið er á birtingu íslenskrar þýðingar orðsendingarinnar er ráðlegt að miða við nýjustu orðsendingu framkvæmdastjórnar ESB um þetta efni hverju sinni, sem nálgast má í Stjórnartíðindum Evrópusambandsins. Alla íslenska staðla má nálgast hjá Staðlaráði Íslands.

II. KAFLI Markaðssetning og notkun.

7. gr. Að bjóða fram á markaði og notkun.

Eingöngu er heimilt að bjóða þráðlausan fjarskiptabúnað, eins og hann er skilgreindur í reglugerð þessari, fram á markaði og taka hann í notkun, ef hann samræmist kröfum reglugerðarinnar, ber CE-merkingu, er rétt upp settur, honum er við haldið og hann er notaður í tilætluðum tilgangi.

8. gr. Frjáls flutningur þráðlauss fjarskiptabúnaðar.

Ekki má hindra að þráðlaus fjarskiptabúnaður, sem fullnægir ákvæðum þessarar reglugerðar, verði boðinn fram á markaði á íslensku yfirráðasvæði, af ástæðum sem varða þættina sem falla undir reglugerð þessa.

Heimilt er á kaupstefnum, vörusýningum, kynningum eða á sambærilegum vettvangi að sýna þráðlausan fjarskiptabúnað sem fellur undir reglugerð þessa en fullnægir ekki ákvæðum hennar, að því tilskildu að vel sýnilegt merki gefi greinilega til kynna að slíkan þráðlausan fjarskiptabúnað megi ekki setja á markað eða taka í notkun fyrr en hann hefur verið færður til samræmis við ákvæði reglugerðar þessarar, merktur með viðeigandi hætti og fullnægi þannig kröfum skv. ákvæðum reglugerðar þessarar.

9. gr. Sérkröfur til tiltekinna flokka eða tegunda þráðlauss búnaðar.

Þráðlaus búnaður sem starfræktur er í strandstöðvarþjónustu, eins og hún er skilgreind í grein S1.28 í fjarskiptareglum Alþjóðafjarskiptasambandsins, eða farstöðvarþjónustu við skip um gervitungl, eins og hún er skilgreind í grein S1.29 sömu reglna, sem ætlaður er til uppsetningar í hafskipum sem falla ekki undir ákvæði IV. kafla alþjóðasamningsins um öryggi mannslífa á hafinu frá 1974 (SOLAS), og er ætlað að vera hluti af hinu alþjóðlega neyðar- og öryggiskerfi fjarskipta á sjó (GMDSS-kerfinu) eins og mælt er fyrir um í IV. kafla SOLAS-samþykktarinnar, skal þannig gerður að tryggt sé að hann virki rétt við siglingar á sjó, uppfylli allar kröfur um starfhæfni í GMDSS-kerfinu í neyðartilvikum og geri skýr og traust boðskipti möguleg, sem eru einnig mjög áreiðanleg, að því er varðar hliðrænt eða stafrænt fjarskiptasamband.

Þráðlaus búnaður sem starfræktur er í strandstöðvarþjónustu, eins og hún er skilgreind í grein S1.28 í fjarskiptareglum Alþjóðafjarskiptasambandsins, eða farstöðvarþjónustu við skip um gervitungl, eins og hún er skilgreind í grein S1.29 sömu reglna, skal hafa möguleika á útfærslu sem tryggir aðgang að neyðarþjónustu. Slíkur búnaður skal hannaður með þeim hætti að hann virki rétt miðað við fyrirhugaðan tilgang í strandstöðvum eða um borð í hafskipum sem falla ekki undir ákvæði IV. kafla alþjóðasamningsins um öryggi mannslífa á hafinu frá 1974 (SOLAS) og uppfylla kröfur Sjálfvirka upplýsingakerfisins (Automatic Identification System; AIS).

Neyðarsendar sem ætlaðir eru til starfrækslu á 406 MHz tíðnisviðinu í samræmi við Cospat-Sarsat kerfið skulu hannaðir með þeim hætti að þeir virki rétt með tilliti til viðurkenndra starfhæfniskrafna búnaðar að teknu tilliti til þess umhverfis sem þeim er ætluð starfræksla á. Í neyðartilvikum skal búnaðurinn gera skýr og traust boðskipti möguleg, sem eru einnig mjög áreiðanleg, með því að uppfylla allar kröfur Cospat-Sarsat kerfisins.

Snjóflóðaýlur, sem nota tíðnina 457 kHz og eru ætlaðar til að staðsetja fólk sem hefur grafist í snjóflóði, skulu hannaðar þannig að þær geti starfað með nýjum ýlum og ýlum sem eru í notkun og byggjast á staðlinum ÍST EN 300718. Snjóflóðaýlur skulu þannig úr garði gerðar að þær starfi örugglega þótt þær lendi í snjóflóði og haldi áfram að starfa þótt þær séu grafnar þar í langan tíma eftir snjóflóðið.

10. gr. Tungumálakröfur til gagna.

Gögn og upplýsingar, sem vísað er til í 8. mgr. 10. gr., 4. mgr. 12. gr. og 2. mgr. 13. gr. tilskipunar (ESB) 2014/53, skulu vera á íslensku. Þó skal heimilt að hafa þau á ensku eða Norðurlandatungumáli, öðru en finnsku, enda má ætla að notendahópur viðkomandi vöru skilji hið erlenda tungumál vegna menntunar, starfa eða annarrar sérhæfingar.

Gögn, sem vísað er til í 2. mgr. 18. gr., og 21. gr. tilskipunar (ESB) 2014/53, er heimilt að hafa á ensku eða Norðurlandatungumáli, öðru en finnsku.

III. KAFLI Eftirlit og stjórnsýsla.

11. gr. Eftirlitsstjórnvöld.

Fjarskiptastofa er markaðseftirlitsyfirvald skv. reglugerð þessari og fer með markaðseftirlit með þráðlausum fjarskiptabúnaði og rekstraraðilum hans.

Faggildingarsvið Hugverkastofu, sinnir mati og vaktar tilkynntar samræmismatsstofur, auk eftirlits í samræmi við ákvæði laga um faggildingu o.fl. nr. 24/2006.

Neytendastofa veitir stjórnvöldum aðstoð vegna beitingar reglugerðar þessarar eftir því sem við á og annast tilkynningar í samræmi við 8. gr. tilskipunar (ESB) 2014/53.

Lögregla og tollyfirvöld eru Póst- og fjarskiptastofnun til aðstoðar á sviði markaðseftirlits.

12. gr. Tilkynntar samræmismatsstofur.

Samræmismatsstofa, sem er með staðfestu hér á landi og hyggst leysa af hendi samræmismatsverkefni á grundvelli reglugerðar þessarar, skal leggja fram umsókn um tilkynningu til ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála á grundvelli reglugerðar þessarar. Ráðherra tekur ákvörðun um að tilkynna samræmismatsstofur sem uppfylla þau skilyrði sem kveðið er á um í reglugerð þessari, að höfðu samráði við faggildingarsvið Hugverkastofu, sbr. lög um faggildingu o.fl. nr. 24/2006, með síðari breytingum.

Ef tilkynntur aðili brýtur af sér eða fullnægir ekki lengur þeim skilyrðum sem starfsleyfi hans byggist á getur ráðherra ákveðið að afturkalla tilnefningu sína á tilkynntum aðila.

Ákvarðanir um tilkynningu aðila og afturköllun slíkrar tilkynningar skulu tilkynntar til Eftirlitsstofnunar EFTA, EES-ríkja og framkvæmdastjórnar ESB.

13. gr. Markaðseftirlit.

Póst- og fjarskiptastofnun skal að eigin frumkvæði eða eftir ábendingu taka til meðferðar mál er varða markaðseftirlit með þráðlausum fjarskiptabúnaði og skyldum rekstraraðila. Í því skyni skal stofnunin hafa ótakmarkaðan aðgang að sölustöðum slíks búnaðar.

Tilkynningar Póst- og fjarskiptastofnunar sem markaðsyfirvalds sbr. 40.-42. gr. tilskipunar (ESB) 2014/53 skulu sendar Eftirlitsstofnun EFTA, EES-ríkjum og framkvæmdastjórn ESB.

14. gr. Eftirlit með þráðlausum fjarskiptabúnaði innan EES.

Í samræmi við 39. gr. tilskipunar (ESB) 2014/53 skulu ákvæði 3. mgr. 15. gr. og 16.-29. gr. reglugerðar Evrópusambandsins nr. 765/2008, sbr. reglugerð nr. 566/2013, um markaðseftirlit, faggildingu o.fl., gilda um þráðlausan fjarskiptabúnað.

IV. KAFLI Viðurlög, kæruheimild og gildistaka.

15. gr. Stjórnsýsluúrræði Póst- og fjarskiptastofnunar.

Ef þráðlaus fjarskiptabúnaður, sem uppfyllir ekki grunnkröfur þær sem skilgreindar eru í reglugerð þessari, er settur á markað, fluttur inn eða honum dreift, getur stofnunin krafist þess að sala hans og/eða notkun verði þegar í stað stöðvuð, búnaðurinn verði kyrrsettur eða haldlagður og rekstraraðilar grípi til aðgerða til úrbóta.

Póst- og fjarskiptastofnun getur einnig, að undangengnu mati, takmarkað að þráðlaus fjarskiptabúnaður sé settur á markað, fluttur inn eða honum dreift af ástæðum sem tengjast almannaöryggi, almannaheilbrigði og almannahagsmunum. Getur stofnunin jafnframt krafist aðgerða af hálfu rekstraraðila til úrbóta í slíkum tilvikum.

Póst- og fjarskiptastofnun getur gert kröfu um að rekstraraðilar afhendi stofnuninni sundurliðaðar upplýsingar og teikningar af búnaði sem settur hefur verið á markað eða ráðgert er að setja á markað. Með slíkar upplýsingar skal farið sem trúnaðarmál.

16. gr. Dagsektir.

Verði rekstraraðili þráðlauss fjarskiptabúnaðar ekki við ósk Fjarskiptastofu um upplýsingar í tengslum við skoðun einstakra mála, fyrirmælum Fjarskiptastofu sem koma fram í ákvörðunum stofnunarinnar eða fari ekki eftir niðurstöðu mats stofnunarinnar á búnaði, getur Fjarskiptastofa lagt á hann dagsektir í samræmi við ákvæði 19. gr. laga um Fjarskiptastofu, nr. 75/2021.

17. gr. Stjórnvaldssektir.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt 103. gr. fjarskiptalaga, nr. 70/2022, sbr. p-lið 1. mgr. ákvæðisins.

18. gr. Kæruheimild.

Ákvarðanir Fjarskiptastofu á grundvelli reglugerðar þessarar er heimilt að kæra til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála skv. lögum um Fjarskiptastofu, nr. 75/2021.

19. gr. Gildistaka og lagastoð.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 33. gr., sbr. 107. gr. laga um fjarskipti, nr. 70/2022 og 27. gr. laga um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu, nr. 134/1995 og öðlast þegar gildi.

Samhliða fellur úr gildi reglugerð um þráðlausan búnað og notendabúnað til fjarskipta og gagnkvæma viðurkenningu á samræmi þeirra, nr. 90/2007.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.