Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

835/2020

Hafnarreglugerð fyrir Fjarðabyggðarhafnir

1. gr. Stærð og takmörk Fjarðabyggðarhafna.

1.1 Hafnarsvæði:

Mjóafjarðarhöfn, Norðfjarðarhöfn, Eskifjarðarhöfn, Reyðarfjarðarhöfn, Fáskrúðsfjarðarhöfn, Stöðvarfjarðarhöfn og Breiðdalsvíkurhöfn.

1.2 Takmörk hafnarsvæðis á sjó eru:

Mjóafjarðarhöfn tekur yfir Mjóafjörð vestan línu sem hugsast dregin úr Eldleysu norðan fjarðarins í Hafnartanga sunnan fjarðarins.

Norðfjarðarhöfn tekur yfir Norðfjörð vestan línu sem hugsast dregin frá Nípustapa í Barðsneshorn.

Eskifjarðarhöfn takmarkast af línu er hugsast dregin frá Hólmanestá yfir fjörðinn að vestanverðri Stekkseyri. Markar sú lína einnig mörk Eskifjarðarhafnar og Reyðarfjarðarhafnar.

Reyðarfjarðarhöfn tekur yfir Reyðarfjörð vestan línu sem hugsast dregin frá Haugatanga norðan fjarðar í Vattarnestanga sunnan fjarðar.

Fáskrúðsfjarðarhöfn nær yfir Fáskrúðsfjörð innan línu, sem hugsast dregin úr Hafnarnesi norðan fjarðar í norðanverða Andey, og úr sunnanverðri Andey í Strembitanga sunnan fjarðar.

Stöðvarfjarðarhöfn nær yfir Stöðvarfjörð vestan línu, sem hugsast dregin úr Landatanga norðan fjarðar og í Rastarhæl sunnan fjarðar.

Breiðdalsvíkurhöfn nær yfir alla Breiðdalsvík norðvestan línu sem hugsast dregin úr Illabás að norðanverðu í Streitisvita að sunnanverðu.

1.3 Takmörk hafnarsvæðis á landi eru í samræmi við aðalskipulag Fjarðabyggðar á hverjum tíma.

1.4 Helstu landsvæði hafnanna eru:

Hafnarbakka og bryggjur.
Farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði.
Götur.
Lóðir, iðnaðar- og baksvæði.

2. gr. Stjórn Fjarðabyggðarhafna.

Fjarðabyggð er eigandi Fjarðabyggðarhafna. Bæjarstjórn fer með yfirstjórn hafnarmála, framkvæmdastjórn er falin hafnarstjórn og hafnarstjóra.

Hafnarstjórn er kjörin af bæjarstjórn skv. þeim reglum er gilda um kjör fastra nefnda bæjarstjórnar. Hafnarstjórn skipa fimm fulltrúar og fimm til vara og er kjörtímabil þeirra hið sama og bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Fjarðabyggðar kýs formann og varaformann úr hópi kjörinna hafnarstjórnarmanna. Hafnarstjórn skiptir að öðru leyti með sér verkum.

Auk hinna kjörnu fulltrúa skal hafnarstjóri sitja fundi hafnarstjórnar með málfrelsi og tillögurétt.

3. gr. Starfs- og valdsvið hafnarstjórnar.

Hafnarstjórn hefur umsjón með fjármálum, rekstri, viðhaldi og nýbyggingum Fjarðabyggðarhafna. Leita skal staðfestingar bæjarstjórnar á fjárhagsáætlun hafnarsjóðs svo og lántökum hafnarsjóðs lengur en yfirstandandi fjárhagsár.

Hafnarstjórn hefur ákvörðunarvald um rekstur Fjarðabyggðarhafna, svo sem ráðstöfun á aðstöðu, þ.m.t. leiga á húsnæði og landi í eigu Fjarðabyggðarhafna.

Hafnarstjórn veitir leyfi til starfsemi á hafnarsvæðinu og hefur vald til að banna eða takmarka afnot hafnarsvæðis.

Hafnarstjórn gerir tillögur til bæjarstjórnar varðandi skipulagsmál á hafnarsvæðinu, enda hafi tillögurnar fengið umfjöllun skipulagsnefndar. Byggingamál á hafnarsvæðinu skulu hljóta umfjöllun hafnarstjórnar áður en þau eru lögð fyrir bæjarstjórn.

4. gr. Starfs- og valdsvið hafnarstjóra.

Hafnarstjórn ræður hafnarstjóra. Fer hann með daglega stjórn Fjarðabyggðarhafna í umboði hafnarstjórnar. Hafnarstjóri undirbýr mál sem leggja á fyrir hafnarstjórn, veitir viðtöku erindum til hennar og sér um framkvæmd samþykkta hafnarstjórnar. Hann veitir hafnarstjórn og bæjarráði upplýsingar um málefni Fjarðabyggðarhafna. Hann sér um að fjárhagsáætlun sé fylgt og ber ábyrgð á fjárreiðum hafnarsjóðs.

Hafnarstjóri skal vinna störf sín í samræmi við ákvæði hafnalaga og hafnareglugerða, auk reglugerðar þessarar og fara að öðru leyti eftir samþykktum bæjarstjórnar og hafnarstjórnar.

Hafnarstjóri sér um að gætt sé reglu á öllu hafnarsvæðinu hvort sem er á sjó eða landi. Er öllum skylt að hlýða fyrirmælum hans, eða þeirra sem hann felur umsjón með rekstri hafna, eftirlit og aðgæslu.

5. gr. Um aðra starfsmenn hafnarinnar.

Hafnarstarfsmenn sem hafa umsjón með eignum Fjarðabyggðarhafna, gæta reglu og sinna skipaþjónustu, skulu bera skilríki um starf sitt og/eða einkennisbúning samkvæmt ákvörðun hafnarstjórnar.

Starfsmenn Fjarðabyggðarhafna skulu gæta allrar kurteisi í starfi en skipunum starfsmanna ber að hlýða þegar í stað. Telji einhver sig órétti beittan af hálfu starfsmanna Fjarðabyggðarhafna getur hann tilkynnt það til hafnarstjóra.

6. gr. Hafnsaga og önnur þjónusta við skip.

Öll skip lengri en 100 m, að undanskildum innlendum fiskiskipum, og öll skip sem flytja hættulegan varning, skulu taka hafnsögumann við komu, brottför og siglingu um hafnarsvæði.

Sérhvert skip, sem ætlar til Fjarðabyggðarhafna og skal hlíta eða óskar eftir hafnsögu skal gera boð um það til hafnsögumanns með minnst sex klst. fyrirvara. Er hafnsögumanni skylt að fara til móts við skipið allt að þremur sjómílum undan mörkum Fjarðabyggðarhafna, ef skipstjóri æskir þess.

Hafnsögumaður vísar skipinu leið að hafnarkanti og má eigi yfirgefa það án samþykkis skipstjóra, fyrr en skipið er komið í viðlegu. Heimilt er hafnsögumanni meðan hann hefur ekki lokið starfi sínu að banna hverjum þeim sem ekki á lögmætt erindi að koma á skipsfjöl. Meðan hafnsögumaður dvelur um borð ber skipinu að sjá honum fyrir fæði.

Hafnarstjórn er heimilt að veita skipstjóra skips sem skylt er að lúti hafnsögu skv. þessari grein, undanþágu frá hafnsögu. Skilyrði undanþágu er að skipstjóri hafi siglt viðkomandi eða sambærilegu skipi reglulega að sama hafnarkanti Fjarðabyggðarhafna, ekkert verið athugavert við þær siglingar og sé kunnugur staðháttum. Nú hefur skipstjóri ekki gegnt skipstjórnarstörfum í tvö ár og fellur undanþágan þá niður.

Hafnarstjóri hefur umsjón með að viðhaldið sé lista um þá skipstjórnarmenn sem hafi heimild til undanþágu frá hafnsögu.

Undanþága frá hafnsögu skuldbindur viðkomandi skipstjóra til að hafa náið talstöðvarsamband við hafnsögumenn og hlíta í einu og öllu fyrirmælum þeirra, ella má svipta þá undanþágunni fyrirvaralaust.

Hafnarstjóri getur veitt undanþágu frá hafnsöguskyldu ef sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.

Starfsmenn á vegum Fjarðabyggðarhafna sjá um bindingu skipa, sölu og afgreiðslu vatns og rafmagns. Hafnsögumaður ákveður notkun báta og mannafla eftir aðstæðum hverju sinni.

7. gr. Um hafnagjöld.

Gjöld til hafnarsjóðs skulu innheimt samkvæmt gjaldskrá er sett skal í samræmi við ákvæði gildandi hafnalaga, nr. 61/2003, laga um siglingavernd, nr. 50/2004, og þjónustugjaldskrá sem hafnarstjórn setur.

8. gr. Löggæsla á hafnarsvæðum.

Lögreglan í umdæmi lögreglustjórans á Austurlandi hefur á hendi almenna löggæslu á hafnarsvæðum Fjarðabyggðarhafna.

Þeim sem ekki eiga lögmætt erindi á hafnarsvæði Fjarðabyggðarhafna er bannað að dvelja þar ef þeir með því hindra lestun, losun eða önnur störf, sem þar eru unnin. Banna má ónauðsynlegan akstur hverskonar ökutækja og ónauðsynlega umferð gangandi fólks um bryggju, hafnarbakka, farmstöðvar og önnur afgreiðslusvæði á hafnarsvæðum. Fólk sem fer um hafnarsvæði er þar ávallt á eigin áhættu og ábyrgð.

Bannað er að skjóta flugeldum á hafnarsvæðum án leyfis.

Sand- og malarnám og önnur slík starfsemi er bönnuð á hafnarsvæðum án leyfis hafnarstjóra.

Fiskveiðar á hafnarsvæðum mega ekki trufla eðlilega umferð og afgreiðslu. Bannað er að leggja veiðarfæri og aðrar tálmanir á eðlilegar og/eða merktar siglingaleiðir innan hafnarsvæða og er heimilt að fjarlægja slík veiðarfæri án bótaskyldu.

Hafnarstjóra skal þegar í stað tilkynnt um það sem bjargað er úr höfninni en hann gefur lögreglunni skýrslu, telji hann þess þörf.

9. gr. Bryggjur, skipsflök og hlutir í hirðuleysi.

Ef skip lendir á grynningum eða sekkur þar sem það, að áliti hafnarstjóra, hindrar greiða notkun Fjarðabyggðarhafna, skal það fært burtu svo fljótt sem auðið er af eiganda, umráðamanni eða öðrum sem málið varðar. Verði dráttur á því, má hafnarstjóri láta færa skipið burt á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og skal það flutt á öruggan stað, að vali og eftir mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi skip, til lúkningar á áföllnum kostnaði, á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja skipið tafarlaust. Sala fari fram á kostnað og ábyrgð eiganda og/eða umráðamanns skips.

Skipsflök má ekki draga á land á hafnarsvæði Fjarðabyggðarhafna án leyfis hafnarstjóra.

Ef skip, bátar, bryggjur, flutningstæki á landi eða annar búnaður, í eigu annarra en Fjarðabyggðarhafna, er í hirðuleysi á hafnarsvæðinu og/eða veldur óþrifnaði eða hættu, þá skal hafnarstjóri fyrirskipa eiganda og/eða umráðamanni að gera nauðsynlegar úrbætur innan ákveðins frests. Sé slíkum fyrirmælum ekki sinnt, má fjarlægja viðkomandi hlut á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns og koma fyrir í geymslu á öruggum stað, eftir vali og mati hafnarstjóra.

Hafnarstjóra er heimilt að láta selja viðkomandi hlut á hvern þann hátt sem hagkvæmastur þykir, til lúkningar á áföllnum kostnaði, að undangenginni áskorun til eiganda og/eða umráðamanns um að fjarlægja hlutinn tafarlaust. Sala fari fram á ábyrgð og kostnað eiganda og/eða umráðamanns.

10. gr. Varnir gegn mengun og óþrifnaði.

Engum úrgangi eða rusli má kasta á hafnarsvæði.

Bannaður er hvers konar hvalskurður á hafnarsvæði. Eigi má draga, reka eða flytja á annan hátt, inn á hafnarsvæði, hvali, skipsflök eða neitt það sem valdið getur óþrifnaði, umferðartruflun eða óþægindum á hafnarsvæði nema leyfi hafnarstjóra komi til. Óheimilt er að þrífa notaðan netabúnað frá fisk- eða skeldýraeldi á hafnarsvæði nema í þar til gerðum hreinsistöðvum.

Öllum skipum, farartækjum svo og verksmiðjum og öðrum atvinnurekstri er stranglega bannað að dæla eða láta renna í hafnarsvæði olíu, lýsi, olíusora eða öðru sem valdið getur mengun.

Skip sem hyggjast taka fljótandi eldsneyti skulu áður hafa gert ráðstafanir til að eldsneyti renni ekki í sjóinn af þilfari ef óhapp verður við eldsneytistökuna. Afgreiðsluaðila er óheimilt að afgreiða olíu til skipa sem ekki hafa, að mati starfsmanna Fjarðabyggðarhafna, gert forsvaranlegar ráðstafanir til varnar mengun.

Um varnir gegn mengun sjávar og viðurlög við mengunarbrotum fer samkvæmt gildandi lögum á hverjum tíma.

11. gr. Beiðni um og skilyrði fyrir þjónustu.

Allir þeir sem óska eftir afgreiðslu fyrir skip, láni á tækjum eða þjónustu á einn eða annan hátt hjá Fjarðabyggðarhöfnum, skulu snúa sér beint til starfsmanna Fjarðabyggðarhafna með beiðni þar að lútandi.

Heimilt er hafnarstjóra að neita þeim aðilum um aðstoð eða þjónustu, sem eru í vanskilum með gjöld til Fjarðabyggðarhafna og hafa ekki sinnt ítrekuðum áskorunum um greiðslu gjaldfallinna gjalda. Í slíkri áskorun skal geta um þær afleiðingar af vanskilum sem koma fram í 1. málslið greinarinnar.

12. gr. Hverjum gefa skal fyrirmæli.

Fyrirmæli samkvæmt reglugerð þessari skulu gefin skipstjóra en stýrimanni ef skipstjóri er ekki á skipi. Ef stýrimaður er einnig fjarverandi má gefa einhverjum öðrum af skipshöfninni skipanir og er það jafngilt sem skipstjóri hefði sjálfur tekið við skipunum.

13. gr. Um skaðabótaskyldu.

Um skaðabótaskyldu þeirra sem leið eiga um hafnarsvæði Fjarðabyggðarhafna, vegna skemmda á mannvirkjum hennar eða áhöldum fer eftir almennum skaðabótareglum.

Ef ekki næst samkomulag um fjárhæð skaðabóta skulu þær ákveðnar með mati tveggja dómkvaddra matsmanna, dómkvöddum af Héraðsdómi Austurlands. Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að óska dómkvaðningar samkvæmt þessari grein. Kostnaður af mati greiðist að jöfnu.

Hvorum aðila fyrir sig er heimilt að krefjast yfirmats, innan mánaðar frá því matsgerð samkvæmt 2. gr. liggur fyrir og hefur verið kynnt aðilum. Til yfirmats skal dómkveðja þrjá matsmenn. Kostnaður við yfirmat greiðist af þeim sem þess krafðist, nema það sé honum í vil, þá skal kostnaður greiðast að jöfnu.

Niðurstaða dómkvaddra matsmanna, hvort sem er samkvæmt 2. eða 3. mgr. skal vera endanleg niðurstaða um bótafjárhæð.

14. gr. Kæruheimild.

Notendum Fjarðabyggðarhafna er heimilt að skjóta ákvörðunum hafnarstjórnar samkvæmt reglugerð þessari, öðrum en gjaldskrárákvörðunum, til Samgöngustofu. Ákvörðunum Samgöngustofu má skjóta til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Um málsmeðferð fer samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga.

15. gr. Brot.

Brot gegn reglugerð þessari varða sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Um mál út af brotum á reglugerð þessari skal fara að hætti opinberra mála.

16. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt 4. gr. hafnalaga nr. 61/2003 og 17. gr. laga nr. 41/2003 um vaktstöð siglinga staðfestist hér með til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi hafnarreglugerð fyrir Breiðdalsvíkurhöfn nr. 583/2005 og hafnarreglugerð fyrir hafnir Fjarðabyggðar nr. 978/2009.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 20. ágúst 2020.

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.