Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

777/2017

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 474/2017 um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi.

1. gr.

Við 20. gr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/403 frá 18. mars 2016 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 1071/2009 að því er varðar flokkun alvarlegra brota á reglum Sambandsins, sem geta leitt til þess að óflekkað mannorð flutningsaðila á vegum skaðast, og um breytingu á III. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/22/EB, samkvæmt ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 106/2017 frá 13. júní 2017 um breytingu á XIII. viðauka við EES-samninginn. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 40 frá 29. júní 2017, bls. 125-144.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 2. mgr. 32. gr. og 34. gr. laga um farþegaflutninga og farmflutninga á landi nr. 27/2017, öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 18. ágúst 2017.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.