Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Breytingareglugerð

708/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 48/2012 um sameiginlegar reglur um flugrekstur og flugþjónustu innan Evrópska efnahagssvæðisins.

1. gr.

Við 9. gr. reglugerðarinnar bætist stafliður e sem orðast svo:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/696 frá 25. maí 2020 um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1008/2008 um sameiginlegar reglur um rekstur flugþjónustu í Bandalaginu með tilliti til heimsfaraldursins af völdum COVID-19, eins og hún er tekin upp í EES-samninginn, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 92/2020 frá 18. júní 2020.

2. gr.

Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/696, sem nefnd er í 1. gr., er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 2. mgr. 3. gr., 57. gr. b., 80. gr., 85. gr. a., 7. mgr. 125. gr. og 146. gr. a., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 15. júlí 2020.

F. h. r.

Hermann Sæmundsson.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.