Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

654/2017

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 463/1998, um leyfi til farþegaflutninga með skipum.

1. gr.

Hvar sem orðin "Siglingastofnun" eða "Siglingastofnun Íslands", í hvers konar beygingarfalli, koma fyrir í reglugerðinni, kemur í viðeigandi beygingarfalli: Samgöngustofa.

2. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar:

  1. Orðin "að undanskildum skipum í farþegaflutningum milli landa" falla brott.
  2. Við málsgreinina bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Farþegaskip sem falla undir alþjóðasamning um öryggi mannslífa á hafinu (SOLAS) og erlend farþegaskip sem falla undir tilskipun 2009/45/EB um öryggi farþegaskipa í innanlandssigligum og sæta hafnarríkiseftirliti samkvæmt reglugerð um hafnarríkiseftirlit, eru undanskilin þessari reglugerð.

3. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. 2. málsl. 2. tölul. 2. mgr. hljóðar svo: Samgöngustofa getur veitt undanþágu frá kröfum sem gerðar eru til skipa að því marki sem heimilt er í viðeigandi reglum. Slík undanþága verður aðeins veitt hafi eigandi skips eða útgerðarmaður sýnt fram á með áhættumati, prófunum eða öðru að búnaður, efni, tæki, verklagsreglur eða annað, tryggi að minnsta kosti jafngilt öryggisstig og viðeigandi kröfum er ætlað að tryggja.
  2. Í stað orðanna "kaupskipa nr. 59/1995" í 5. tölul. 2. mgr. kemur: farþegaskipa og flutningaskipa nr. 76/2001, með síðari breytingum.

4. gr. Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 3. málsl. 5. mgr. 1. gr. laga nr. 47/2003, um eftirlit með skipum, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 29. júní 2017.

Jón Gunnarsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.