Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

651/2017

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 438/2012 um sameiginlegar reglur um flæðisstjórnun flugumferðar.

1. gr.

Við 4. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður, b, sem orðast svo:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2016/1006 frá 22. júní 2016 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 255/2010 að því er varðar ákvæði Alþjóðaflugmálastofnunarinnar sem um getur í 1. mgr. 3. gr., sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 213 frá 28. október 2016. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjónartíðindi Evrópusambandsins nr. 63 17. nóvember 2016, bls. 90-91.

2. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 146. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 30. júní 2017.

F. h. r.

Sigurbergur Björnsson.

Gunnar Örn Indriðason.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.