Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

635/2017

Reglugerð­ um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2017. - Brottfallin

1. gr.

Tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk.

Tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2017 eru eftirfarandi og skulu þær renna í sérstaka deild innan sjóðsins:

  1. Hlutdeild í útsvarstekjum sveitarfélaga af álagningarstofni útsvars er nemur 0,99%.
  2. Framlag úr ríkissjóði er nemur 0,235% af innheimtum skattekjum ríkissjóðs.
  3. Framlag úr ríkissjóði er nemur 199,4 m.kr. vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA).
  4. Framlög úr Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna sölu og leigu eigna sem nýttar eru fyrir þjónustu við fatlað fólk.

Við skil á staðgreiðslu útsvars samkvæmt lögum nr. 45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda skulu Jöfnunarsjóði gerð skil á sínum hluta skv. a-lið 1. mgr. Fjársýsla ríkisins skal sjá um út­reik­ning á tekjum þessum og skipta innheimtri staðgreiðslu hvers mánaðar milli ríkis, sveitar­félaga og Jöfnunarsjóðs. Tekjur sjóðsins skulu reiknaðar af þeim stofni sem staðgreiðsla hvers mánaðar er greidd af.

Ennfremur skal Fjársýsla ríkisins við álagningu sjá um útreikning á hlutdeild Jöfnunarsjóðs í útsvari af þeim tekjum sem skattlagðar eru eftir á. Fjársýsla ríkisins skal í uppgjöri staðgreiðslu sveitar­félaga við álagningu útsvars, að höfðu samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga, taka tillit til hlutdeildar Jöfnunarsjóðs og gera sjóðnum skil á henni.

Til viðbótar þeim tekjum Jöfnunarsjóðs á árinu 2017, sem tilgreindar eru í 1. mgr., eru til ráð­stöfunar á árinu óráðstöfuð framlög frá fyrra ári vegna NPA.

2. gr.

Framlög.

Jöfnunarframlög vegna þjónustu við fatlað fólk skiptast á árinu 2017 í:

  1. Almenn framlög til þjónustusvæða og sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk, sbr. 3. gr.
  2. Önnur framlög, sbr. 4. gr.
  3. Framlög vegna NPA, sbr. 5. gr.
  4. Framlög í Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Til viðbótar framlögum skv. 1. mgr. er heimilt að veita sérstök viðbótarframlög til svæða ef um veru­lega íþyngjandi kostnað umfram tekjur er að ræða. Ráðgjafarnefnd setur sérstakar verk­lags­reglur um úthlutun viðbótarframlaga.

Framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk eru óháð öðrum framlögum sjóðsins.

Jöfnunarsjóður sendir þjónustusvæðum/sveitarfélögum upplýsingar um áætluð framlög ársins 2017 og greiðsludreifingu þeirra eftir því sem við verður komið. Framlög skulu greidd mánaðarlega. Framlög skulu endurskoðuð innan ársins í samræmi við breytingar á áætluðum tekjum sjóðsins, sbr. 1. gr. og á grundvelli nýrra upplýsinga frá þjónustusvæðum/sveitarfélögum.

3. gr.

Almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2017.

I. hluti: Skipting ráðstöfunarfjármagns.

Áætluðum ráðstöfunartekjum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2017, að frádregnu framlagi í Fasteignasjóð Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, framlögum vegna NPA, sér­stökum viðbótarframlögum og öðrum framlögum, sbr. b-d-lið 1. mgr. og 2. mgr. 2. gr., skal skipta milli sveitarfélaga sem mynda þjónustusvæði með eftirfarandi hætti:

  1. 87% skiptast hlutfallslega miðað við niðurstöðu mælinga á útgjaldaþörf, sbr. II. hluta þessarar greinar.
  2. 12% skiptast hlutfallslega miðað við áætlaðan útsvarsstofn sveitarfélaga 2017.
  3. 1% skiptist hlutfallslega miðað við fjarlægðir innan þjónustusvæða og að teknu tilliti til fjölda sveitarfélaga innan svæða.

Áætluð framlög ársins 2017 eru reiknuð út á grundvelli framlaga ársins 2016 að teknu tilliti til endanlegs álagningarstofns útsvars á árinu 2015 og endurskoðaðrar áætlunar um útsvarstekjur sveitarfélaga á árinu 2017. Framlögin skulu síðan endurreiknuð sem hér segir:

  1. Í maí 2017 á grundvelli viðbótarupplýsinga frá þjónustusvæðum/sveitarfélögum, sbr. 1. lið 6. mgr. II. hluta.
  2. Í nóvember 2017, sbr. 2., 3. og 4. lið 6. mgr. II. hluta.
  3. Við greiðslu framlaga á árinu 2017 fer jafnframt fram leiðrétting framlaga ársins 2015 á grundvelli endanlegs álagningarstofns útsvars 2015.

Útreiknuð framlög ársins 2017 skal leiðrétta þegar endanlegur álagningarstofn útsvars ársins 2017 liggur fyrir. Upplýsingar um leiðréttingu skulu liggja fyrir eigi síðar en 31. desember 2018 og skal leiðrétting framlaga til hvers þjónustusvæðis eða sveitarfélags koma til frádráttar/viðbótar almennum framlögum Jöfnunarsjóðs vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2019. Reynist áætlun ársins 2019 lægri en frádráttur vegna ársins 2017 er heimilt að innheimta mismuninn af öðrum framlögum Jöfnunarsjóðs.

II. hluti: Mæling á útgjaldaþörf.

Við mælingu á útgjaldaþörf vegna þjónustu við fatlað fólk, sbr. a-lið 1. mgr. I. hluta, skal byggt á þeim upplýsingum um kostnað og stuðningsþörf einstaklinga í sérhæfðri þjónustu sem lagðar voru til grundvallar við útreikning framlaga á árinu 2016.

Við mælinguna skal greina fylgni flokka stuðningsþarfar, sbr. 6. gr., og kostnaðar á einstakling til að ákvarða viðmiðunarfjárhæð fyrir hvern flokk stuðningsþarfar. Ef ekki liggur fyrir mat á stuðningsþörf er heimilt að reikna gildi sem samsvarar flokkum matsins á grundvelli eldra mats. Heimilt er að reikna álag á ákveðna flokka á grundvelli sérstakrar stuð­nings­þarfar vegna hegðunar. Ennfremur er heimilt að reikna álag vegna einstaklinga með óvenjulega samsetningu stuðningsþarfar.

Útgjaldaþörf skal mæld með eftirfarandi aðferðum:

  1. Reikna skal útgjaldaþörf á grundvelli viðmiðunarfjárhæða fyrir hvern flokk stuðningsþarfar vegna allra einstaklinga sem falla í 4. flokk samræmds mats á þjónustuþörf eða ofar.
  2. Þrátt fyrir ákvæði a-liðar skal reikna útgjaldaþörf vegna einstaklinga í flokki 4 og ofar á grundvelli raunkostnaðar, ef raunkostnaður og áætlaður viðbótarkostnaður vegna ársins 2017 er lægri en 12,5% af einingakostnaði viðkomandi flokks. Ekki reiknast útgjaldaþörf vegna fasteignakostnaðar, sbr. d-lið vegna einstaklinga sem falla undir þetta ákvæði.
  3. Reikna skal útgjaldaþörf vegna barna sem ekki hafa mat á þjónustuþörf á grundvelli raunkostnaðar sé hann jafn hár eða hærri en einingakostnaður 4. flokks.
  4. Reikna skal útgjaldaþörf vegna fasteignakostnaðar fyrir alla einstaklinga sem falla í 5. flokk matsins eða ofar og er hann innifalinn í einingakostnaði viðkomandi flokka.
  5. Reikna skal útgjaldaþörf vegna áætlaðs viðbótarkostnaðar árið 2017 vegna einstaklinga sem ekki hafa mat á þjónustuþörf og skal útreikningur fara fram þegar kostnaður samsvarar einingakostnaði fjórða flokks.
  6. Reikna skal sérstakt álag á samtölu liða a-e vegna útgjalda við umsýslu fjármála, starfsmannamála og annarra skyldra rekstrarverkefna.
  7. Reikna skal sérstakt álag á samtölu liða a-e vegna útgjalda af ráðgjöf og samhæfingu þjónustu.
  8. Samtala liða a-g myndar grunn að hlutfallslegri skiptingu fjármuna á grundvelli mældrar útgjaldaþarfar, sbr. a-lið 1. mgr. I. hluta þessarar greinar.

Við mat á útgjaldaþörf sveitarfélaga/þjónustusvæða skal taka tillit til fjarlægða innan svæðisins þar sem fleiri en eitt sveitarfélag mynda þjónustusvæðið og fjölda þeirra. Einvörðungu er tekið tillit til sveitarfélaga þar sem um umtalsverða þjónustu er að ræða í málaflokknum og veitt eru framlög úr Jöfnunarsjóði.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga skal senda þjónustusvæðum/sveitarfélögum gögn sem sýna kostnað skv. hverjum flokki matsins sem og upplýsingar um niðurstöður útreikninga einstakra þátta fram­lagsins.

Við mælingu á útgjaldaþörf skv. framangreindu vegna úthlutunar framlaga árið 2017 skal jafnframt taka tillit til eftirfarandi þátta á grundvelli viðbótarupplýsinga frá þjónustusvæðum/sveitarfélögum:

  1. Uppfæra skal upplýsingar um lögheimili einstaklinga í þjónustu með tilliti til flutnings þeirra milli þjónustusvæða/sveitarfélaga. Við útreikning framlaga 2017 skal miðað við lögheimili einstaklings 1. janúar 2017.
  2. Framkvæma skal samræmt mat á þjónustuþörf einstaklinga sem ekki höfðu náð 18 ára aldri við útreikning framlaganna árið 2016 en hafa náð 18 ára aldri 1. janúar 2017 sé raunkostnaður jafn hár eða hærri en einingakostnaður 4. flokks.
  3. Ennfremur skal safna upplýsingum um einstaklinga í þjónustu með viðbótarkostnaði á árinu 2017 sem samsvarar kostnaði að fjárhæð 4,4 m.kr.
  4. Framkvæma skal á árinu samræmt mat á stuðningsþörf fatlaðra barna á aldrinum 6-18 ára ásamt mati á stuðningsþörf fullorðinna vegna nýliðunar sbr. 6. gr.

Þegar um tímabundna búferlaflutninga einstaklinga í þjónustu er að ræða, er þjónustusvæðum heimilt að semja sín á milli um að framlög Jöfnunarsjóðs vegna þeirra einstaklinga, skv. III. hluta, flytjist milli þjónustusvæða enda þótt lögheimili viðkomandi haldist óbreytt. Slíkir samningar hafa ekki áhrif á jöfnunarframlög samkvæmt þessari reglugerð. Samband íslenskra sveitarfélaga getur gefið út leiðbeinandi viðmið um samninga sem þjónustusvæði gera sín á milli.

III. hluti: Útreikningur framlaga.

Framlög til einstakra þjónustusvæða eða sveitarfélaga skulu reiknuð út sem hér segir:

  1. Þegar niðurstaða liggur fyrir skv. a-, b- og c-lið í 1. mgr. I. hluta, skal á grunni áætlaðs útsvarsstofns ársins 2017 reikna út útsvarstekjur sem samsvara 0,25% af útsvarsstofni og sem renna skulu beint til þjónustu við fatlað fólk innan viðkomandi þjónustusvæðis.
  2. Finna skal mismun mældrar heildarútgjaldaþarfar hvers þjónustusvæðis eða sveitarfélags skv. II. hluta og áætlaðra útsvarstekna skv. 1. tölulið.
  3. Sé mæld útgjaldaþörf sveitarfélaga, sem mynda þjónustusvæði, hærri en sem nemur útsvarstekjum af 0,25% hlutdeild þeirra í útsvarsstofni er mismunurinn greiddur sem almenn framlög vegna þjónustu við fatlað fólk.

4. gr.

Önnur framlög.

Á árinu 2017 greiðir Jöfnunarsjóður sveitarfélaga framlag til Sambands íslenskra sveitarfélaga sem nemur 0,14% af tekjum sjóðsins skv. a-lið 1. mgr. 1. gr. vegna kostnaðar Sambandsins við verkefni er tengjast þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk á árinu.

Jöfnunarsjóði er jafnframt heimilt að ráðstafa fjármagni á árinu 2017 á eftirfarandi hátt:

  1. Til einstakra verkefna, nýsköpunar eða þróunarvinnu sem nýtist þjónustu­svæðum/sveitar­félögum og þjónustusvæðum til framþróunar í málaflokknum.
  2. Til greiðslu kostnaðar vegna eftirfarandi þátta:
    1. Upplýsingasöfnunar, greiningar og ráðgjafar.
    2. Samræmds mats á stuðningsþörf á landsvísu.
    3. Útfærslu jöfnunaraðgerða og fasteignamála.

Ráðgjafarnefnd setur nánari verklagsreglur um úthlutun slíkra framlaga og gerir tillögu til ráðherra um úthlutun framlaga á grundvelli 1. gr.

5. gr.

Framlög vegna notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA).

Við tillögugerð ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að úthlutun framlaga til NPA skal taka mið af áætlun verkefnisstjórnar NPA. 

6. gr.

Mat á stuðningsþörf.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur forgöngu um samræmt mat á stuðningsþörf á landsvísu, semur við matsaðila um framkvæmd matsins og ber kostnað af því. Heimilt er að ákveða að greiðsla kostnaðar takmarkist við mat á tilteknum fjölda einstaklinga.

Þjónustusvæði og sveitarfélög fela matsaðila skv. 1. mgr. framkvæmd matsins á grundvelli ákvæða laga um málefni fatlaðs fólks og er Jöfnunarsjóði sveitarfélaga heimilt að krefja matsaðila, þjónu­stusvæði og sveitarfélög um niðurstöður slíks mats.

Jöfnunarsjóður setur verklagsreglur um mat á stuðningsþörf, sem m.a. kveða á um hlutverk og verkefni einstakra aðila sem koma að matsferlinu. Heimilt er að skipa sérstaka ráðgefandi vinnuhópa til að fjalla um álitaefni varðandi niðurstöður matsins. Álit slíkra hópa fela ekki í sér stjórnvaldsákvarðanir.

7. gr.

Staðfesting.

Tillögur ráðgjafarnefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um úthlutanir framlaga á grundvelli þessarar reglugerðar skulu hljóta staðfestingu ráðherra. Við setningu verklagsreglna skal hafa samráð við Samband íslenskra sveitarfélaga.

8. gr.

Gildistaka og endurskoðun.

Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 13. gr. a. og 18. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum, tekur þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð um framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk á árinu 2016 nr. 179/2016.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 29. júní 2017.

Jón Gunnarsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica