Fara beint í efnið

Prentað þann 19. apríl 2024

Breytingareglugerð

298/2021

Reglugerð um breytingu á reglugerð um flugvernd, nr. 750/2016.

1. gr.

Við 2. mgr. 53. gr. reglugerðarinnar bætist nýr stafliður:

  1. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar C(2021)996 frá 19. febrúar 2021 um breytingu á ákvörðun C(2015)8005 að því er varðar nánari útlistun flugverndarráðstafana til innleiðingar á sameiginlegum reglum um flugvernd, eins og vísað er til í a-lið 18. gr. reglugerðar (EB) nr. 300/2008.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 70. gr. d, sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 með síðari breytingum og öðlast þegar gildi.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 3. mars 2021.

F. h. r.

Ólafur Kr. Hjörleifsson.

Ástríður Scheving Thorsteinsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.