Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti

256/2020

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 8/2009 um skoðun ökutækja. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 37. gr. skal fresta álagningu vanrækslugjalds 1. apríl 2020 til 1. maí 2020.

 

2. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 3. mgr. 74. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.

 

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, 25. mars 2020.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica