Sjávarútvegsráðuneyti

139/2007

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 343, 5. apríl 2005, um veiðar á Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski. - Brottfallin

1. gr.

Í stað: "12. apríl 2005" í 2. mgr. 2. gr. kemur: 15. mars 2007.

2. gr.

1. mgr. 3. gr. orðist svo: Á árinu 2007 er íslenskum skipum heimilt að veiða 53,34 tonn af bláuggatúnfiski miðað við afla upp úr sjó.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan landhelgi Íslands og ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 23. febrúar 2007.

F. h. r.

Jón B. Jónasson.

Steinar Ingi Matthíasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica