Sjávarútvegsráðuneyti

361/2007

Reglugerð um stjórn veiða íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum árið 2007. - Brottfallin

1. gr.

Allar veiðar á síld úr norsk-íslenska síldarstofninum eru óheimilar nema að fengnu sérstöku leyfi Fiskistofu. Við veitingu leyfa koma aðeins til greina skip sem aflamark hafa í síld úr norsk-íslenska síldarstofninum.

2. gr.

Leyfi, sbr. 1. gr., tekur til veiða á síld úr norsk-íslenska síldarstofninum í lögsögu Íslands, Færeyja, Noregs, Jan Mayen, á alþjóðlega hafsvæðinu milli Íslands og Noregs og í lögsögu Svalbarða. Við veiðar í lögsögu Færeyja, Noregs og Jan Mayen skal farið að reglum sem stjórnvöld í viðkomandi landi setja um veiðarnar. Um veiðar í lögsögu Noregs gilda og ákvæði 2. mgr. 3. gr. Í lögsögu Svalbarða skal farið að reglum sem norsk stjórnvöld setja um veiðarnar, enda séu þær settar á grundvelli samningsins um Svalbarða frá 9. febrúar 1920 og í samræmi við ákvæði hans.

3. gr.

Á árinu 2007 er íslenskum skipum heimilt að veiða samtals 185.728 lestir af síld.

Í efnahagslögsögu Noregs skulu ekki fleiri en 15 íslensk skip hafa leyfi til síldveiða á hverjum tíma og mega íslensk skip að hámarki veiða 34.560 lestir af síld. Eingöngu er heimilt að veiða norðan 62° N og utan 12 sjómílna frá grunnlínum. Hverju skipi er þannig heimilt að veiða í efnahagslögsögu Noregs 18,608% af aflamarki skips, að teknu tilliti til flutnings aflamarks milli skipa. Heimilt er að flytja sérstaklega milli skipa þann hluta aflamarks sem hverju skipi er heimilt að veiða við Noreg. Fiskistofu skal tilkynnt um slíkan flutning.

4. gr.

Um tilkynningar varðandi síldveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda ákvæði reglugerðar nr. 447/1999, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) með síðari breytingum og taka þær tilkynningar einnig til veiða innan íslensku lögsögunnar. Um tilkynningar varðandi veiðar innan lögsögu Færeyja og Noregs fer samkvæmt reglum hlutaðeigandi stjórnvalda.

5. gr.

Síldarafla skal landað og hann veginn í íslenskri höfn. Heimilt er þó með leyfi Fiskistofu að landa síldarafla og síldarafurðum í höfnum erlendis enda sé tryggt að eftirlit með vigtun aflans sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Jafnframt er heimilt að fengnu leyfi Fiskistofu að landa óvigtaðri síld um borð í vinnsluskip og flutningaskip, enda sé tryggt að skráning og vigtun afla sé fullnægjandi að mati Fiskistofu. Sækja skal um leyfi til löndunar síldar utan íslenskra hafna til Fiskistofu og skal skipstjóri í umsókn tilgreina nákvæmlega hvar hann hyggst landa aflanum og áætlað magn síldar. Þegar að löndun lokinni skal skipstjóri veiðiskips senda Fiskistofu endanlegar tölur um landaðan afla og aflaverðmæti, staðfestar af móttakanda síldarinnar eða staðfest afrit af vigtarnótu, liggi það fyrir.

Heimilt er að miðla afla úr nót til skips, sem leyfi hefur til síldveiða í því skyni að koma í veg fyrir að síld sé sleppt dauðri úr nótum.

Um vigtun á síld gilda að öðru leyti ákvæði reglugerðar um vigtun sjávarafla þó þannig að draga skal 2% af afla hvers skips vegna vatnsinnihalds í síld miðað við afla upp úr sjó og reiknast það magn ekki til aflaheimilda þess.

Landi skip frystum afurðum utan Íslands eftir 30. apríl 2007 skal tilkynna um það í samræmi við ákvæði 5. kafla reglna Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) um fiskveiðieftirlit og framkvæmd þess.

Þegar norsk-íslensk síld er reiknuð til þorskígilda skal miðað við verðmætastuðulinn 0,23.

6. gr.

Brot á reglugerð þessari og ákvæðum leyfisbréfa gefnum út með stoð í henni varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og laga nr. 151, 27. desember 1996, um veiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

Vegna afla umfram leyfilegt hámark skal beita ákvæðum laga nr. 37, 27. maí 1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla. Jafnframt er Fiskistofu heimilt að svipta skip leyfi til síldveiða vegna brota á reglugerð þessari.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 13. apríl 2007.

F. h. r.

Jón B. Jónasson.

Steinar Ingi Matthíasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica