Sjávarútvegsráðuneyti

364/2007

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 447, 30. júní 1999, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC). - Brottfallin

1. gr.

Á 6. gr. verða eftirfarandi breytingar:

2. mgr. 6. gr. orðist svo: Komutilkynning: Skylt er skipstjóra skips að tilkynna til eftir­litsstöðvarinnar með ekki meira en 12 klukku­stunda og að minnsta kosti 2 klukkustunda fyrirvara að það fari inn á viðkomandi samningssvæði til veiða.

1. málsl., 5. mgr., 6. gr. orðist svo: Lokatilkynning: Þegar veiðiskip yfirgefur samn­ings­svæðið skal það tilkynnt eftirlitsstöðinni með ekki meiri en 8 klukkustunda og að minnsta kosti 2 klukkustunda fyrirvara.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands með síðari breytingum og laga nr. 116, 10. ágúst 2006 um stjórn fiskveiða til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 13. apríl 2007.

F. h. r.

Jón B. Jónasson.

Steinar Ingi Matthíasson


Þetta vefsvæði byggir á Eplica