Sjávarútvegsráðuneyti

515/2007

Reglugerð um rækjuveiðar á Breiðafirði 2007. - Brottfallin

1. gr.

Á tímabilinu 13. júní til 31. júlí 2007, er skipum sem eru 105 brl. að stærð eða minni og skráð eru frá höfnum á norðanverðu Snæfellsnesi og gerð þaðan út heimilt að stunda rækjuveiðar á Breiðafirði, sunnan 65°10´N og utan línu, sem dregin er réttvísandi norður frá Krossnessvita. Við veiðar á þessu svæði skal varpa skipanna búin seiðaskilju sbr. reglugerð nr. 396 22. apríl 2005. Afli sem fenginn er við þessar veiðar reiknast til úthafs­rækjuafla skipsins.

2. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 12. júní 2007.

F. h. r.

Jón B. Jónasson.

Guðný Steina Pétursdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica