Sjávarútvegsráðuneyti

1108/2007

Reglugerð um afnám reglugerðar nr. 746, 29. ágúst 2006, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu norður af Vestfjörðum nema notuð sé smáfiskaskilja eða 155 mm poki í botnvörpu. - Brottfallin

1. gr.

Með reglugerð þessari er felld úr gildi reglugerð nr. 746, 29. ágúst 2006, um bann við veiðum með fiskibotnvörpu norður af Vestfjörðum nema notuð sé smáfiskaskilja eða 155 mm poki í botnvörpu.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 25. nóvember 2007.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 23. nóvember 2007.

F. h. r.

Steinar Ingi Matthíasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica