Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

204/2008

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 958, 19. október 2007,um loðnuveiðar erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 2008. - Brottfallin

1. gr.

3. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Norskum skipum er heimilt að veiða samtals 39.125 lestir í fiskveiðilandhelgi Íslands og er þeim aðeins heimilt að stunda loðnuveiðar í efnahagslögsögu Íslands til 15. febrúar 2008 og norðan við 64°30´.

Færeyskum skipum er heimilt að veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands samtals 7.857 lestir.

Grænlenskum skipum er heimilt að veiða 5.186 lestir í fiskveiðilandhelgi Íslands.

Erlend veiðiskip skulu hlíta þeim verndaraðgerðum sem stjórnvöld og Hafrannsókna­stofnun kunna að grípa til.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 22, 8. apríl 1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, til þess að öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 27. febrúar 2008.

F. h. r.

Steinar I. Matthíasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica