Sjávarútvegsráðuneyti

445/2006

Reglugerð um rækjuveiðar á Breiðafirði 2006. - Brottfallin

1. gr.

Á tímabilinu 1. júní til 30. júní 2006, er skipum sem eru 105 brl. að stærð eða minni og skráð eru frá höfnum á norðanverðu Snæfellsnesi og gerð þaðan út heimilt að stunda rækju­veiðar á Breiða­firði, sunnan 65°10´N og utan línu, sem dregin er rétt­vísandi norður frá Krossness­vita. Við veiðar á þessu svæði skal varpa skip­anna búin seiðaskilju sbr. reglugerð nr. 396 22. apríl 2005. Afli sem fenginn er við þessar veiðar reiknast til úthafs­rækju­afla skipsins.

2. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 30. maí 2006.

F. h. r.

Árni Múli Jónasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica