Sjávarútvegsráðuneyti

748/2006

Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu á Glettinganesgrunni nema notuð sé smáfiskaskilja eða 155 mm poki í botnvörpu. - Brottfallin

1. gr.

Veiðar með fiskibotnvörpu á svæði á Glettinganesgrunni eru því aðeins heimilar að varpan sé búin smáfiskaskilju eða 155 mm poka í samræmi við reglugerð nr. 724, 28. ágúst 2006, um gerð og útbúnað smáfiskaskilju og notkun á 155 mm poka í botnvörpu. Svæðið markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1.  65° 34,00¢ N - 13° 09,20¢ V
2.  65° 34,00¢ N - 12° 51,30¢ V
3.  65° 31,00¢ N - 11° 54,40¢ V
4.  65° 27,90¢ N - 11° 51,30¢ V
5.  65° 22,30¢ N - 13° 05,00¢ V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum 16. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast gildi 1. september 2006 og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Frá sama tíma er felld úr gildi reglugerð nr. 936, 24. nóvember 2004, um bann við veiðum með fiskivörpu á Glettinganesgrunni án smáfiskaskilju.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 29. ágúst 2006.

F. h. r.

Árni Múli Jónasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica