Sjávarútvegsráðuneyti

861/2006

Reglugerð um bann við veiðum með fiskibotnvörpu norðvestur af Heimaey. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 18. október 2006 eru allar veiðar með fiskibotnvörpu óheimilar á svæði norðvestur af Heimaey, sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1.  63° 38,00´ N - 20° 34,00´ V
2.  63° 30,70´ N - 20° 18,50´ V
3.  63° 30,19´ N - 20° 16,24´ V
4.  63° 27,00´ N - 20° 20,00´ V
5.  63° 32,00´ N - 20° 34,00´ V

2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt lögum nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fisk­veiði­landhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegsráðuneytinu, 16. október 2006.

F. h. r.

Árni Múli Jónasson.

Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica