Sjávarútvegsráðuneyti

794/2004

Reglugerð um bann við kolmunnaveiðum á Þórsbanka. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 30. september 2004, eru allar veiðar á kolmunna bannaðar út af Suðausturlandi á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

1. 64° 33´00 N - 11° 30´00 V
2. 64° 37´00 N - 10° 51´00 V
3. 64° 17´00 N - 10° 34´00 V
4. 64° 04´00 N - 11° 04´00 V
5. 63° 45´00 N - 10° 40´00 V
6. 63° 30´00 N - 10° 55´00 V
7. 63° 17´00 N - 11° 20´00 V
8. 63° 26´00 N - 11° 55´00 V
9. 63° 46´00 N - 12° 09´00 V
10. 64° 10´00 N - 12° 09´00 V


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi reglugerð nr. 484, 9. júní 2004, um bann við kolmunnaveiðum út af Suðausturlandi.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 30. september 2004.

F. h. r.
Vilhjálmur Egilsson.
Jón B. Jónasson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica