Sjávarútvegsráðuneyti

784/2004

Reglugerð um verndun hrygningar steinbíts á Látragrunni. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 1. október 2004 til og með 31. janúar 2005 eru allar veiðar bannaðar á svæði á Látragrunni, sem markast af línum, sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:


1. 65° 03´00 N - 26° 10´00 V
2. 65° 17´00 N - 26° 10´00 V
3. 65° 17´00 N - 25° 50´00 V
4. 65° 11´00 N - 25° 42´00 V
5. 65° 03´00 N - 25° 50´00 V


2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum 16. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.


3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum 9. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands til þess að öðlast þegar gildi.


Sjávarútvegsráðuneytinu, 23. september 2004.

F. h. r.
Jón B. Jónasson.
Þórður Eyþórsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica